barnalög.
Virðulegi forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að þetta er eitt af þeim atriðum sem þarf að taka á og þess vegna er gildistakan höfð svolítið rúm svo að þetta verði 100% klárað áður en þetta úrræði tekur gildi og hægt sé að nota það. Það er mjög mikilvægt að foreldrar barna með fötlun fái báðir þau úrræði sem þeim stendur til boða þegar þau ákveða að ala barn með fötlun upp á tveimur heimilum. Það á við um hjálpartæki og alla þá hluti sem ekki er hægt að færa á milli heimila. Ég bind miklar vonir við að það verði tryggt og trúi ekki öðru en að það verði gert á þeim tíma sem við gefum félagsmálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu til að bregðast við þeim þáttum sem þarf að tryggja í kjölfarið á samþykki þessa frumvarps.