151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

barnalög.

11. mál
[16:36]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma með þetta mál aftur því að ég tel það mikið framfaramál. Málið fékk mikla og góða umræðu í nefndinni þannig að ég ber þá von í brjósti að okkur takist að afgreiða það á ekkert svo löngum tíma. Málið var nánast komið á lokasprettinn en það var sannarlega mjög margt sem kom upp í nefndinni sem þarf að ræða. Ég vil taka undir það sem hér var verið að ræða áðan, og kom fram hjá sýslumanni, varðandi t.d. riftunina. Það var jafnvel talað um að ef þetta væri í tilkynningarformi reyndist það einfaldara og minni þröskuldur til að gera slíka samninga, að það væri ekki óskaplega þung og erfið leið til baka ef eitthvað kæmi upp á.

Það sem mig langar að spyrja ráðherrann um er m.a. að frumvarpið gerir ráð fyrir að barnabætur takmarkist við helming af útreiknuðum barnabótum þegar búið er að taka tillit til tekjuskerðingar. Þetta bitnar dálítið á þeim sem eru með lægri tekjur og spurning hvort ekki eigi að skipta þeim með öðrum hætti til þess að það sé sanngjarnara. Þetta er eitt.

Síðan langar mig að spyrja ráðherrann, af því að ég sé að hún hefur ekki tekið tillit til þeirra umsagna, um þann hóp sem er í ágreiningi og það skortir traust en það er samt í jafnri umgengni og allt það. Frumvarpið er ekki nægjanlega vel á því þannig að ég velti fyrir mér hvort ráðherra telji að það hefði átt að vera skýrara en það er í frumvarpinu að ekki eigi allir að fara í þessa sáttameðferð.