151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

barnalög.

11. mál
[16:38]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og fagna því að hún telji að mögulegt sé að hv. allsherjar- og menntamálanefnd geti afgreitt frumvarpið hratt og vel, enda gáfu þau því rúman tíma á síðasta þingi. Það er mikilvægt, af því að við þurfum að breyta svo mörgum lögum í kjölfarið, að þetta geti klárast sem fyrst svo að gildistími laganna verði mögulega fyrr og þau geti gagnast fleira fólki fyrr.

Ég kem kannski fyrst inn á þann hóp sem er í ágreiningi og hv. þingmaður spurði um. Það er mjög skýrt í lögunum að hvert mál er metið fyrir sig. Skipt búseta barns kemur einungis til greina þegar sáttavilji er hjá báðum foreldrum þannig að þau geti haft sameiginlegt forræði á öllum sínum málum, tekið sameiginlegar ákvarðanir, náð sátt um hvar barnið er í skóla, hvernig greiðslum skuli háttað o.s.frv. Aðilar sem eru í ágreiningi um eitthvað af eftirtöldum atriðum, um eitthvað sem hefur komið upp síðan þau hófu meðferð hjá sýslumanni um skipta búsetu eða umgengni o.s.frv., munu ekki falla undir úrræðið. Ég held að það sé algerlega skýrt í frumvarpinu en mögulega eitthvað sem nefndin vill hnykkja á eða ítreka í nefndaráliti sínu. En það er algerlega skýrt að skipt búseta barns kemur ekki til greina þegar ágreiningur er á milli foreldra. Þetta er úrræði fyrir þá foreldra sem geta alið upp börn sín í algjörri sátt, til skiptis á tveimur heimilum. Þetta úrræði er til að svara því að kerfið stendur í vegi fyrir slíku nú, fyrir foreldrum í þeirri stöðu. Kannski halda fleiri að þeir muni ná utan um þetta úrræði, að þetta sé lausn deilumála þeirra. Svo er ekki.

Hv. þingmaður kom síðan inn á riftun á úrræðinu. Þar er auðvitað mjög misjafnt hvað getur valdið því að fólk hættir að vera með skipta búsetu barns, stundum er ekki möguleiki (Forseti hringir.) að ná samkomulagi aftur og þá verður að vera hægt að rifta því auðveldlega. En stundum verður hægt að leita til sýslumanns með ákveðin einstök atriði.