151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

barnalög.

11. mál
[16:41]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er samt þannig að sýslumaður telur líka, miðað við síðustu umsögn um þetta mál, sem kemur hér fram óbreytt, að frumvarpið geri ráð fyrir því að annað foreldrið geti óskað eftir sáttameðferð og þá gengur það gegn tilgangi frumvarpsins, þ.e. eins og hæstv. ráðherra var að segja, að hugur hennar væri sá að báðir aðilar yrðu sannarlega að vera sammála um það. En textinn virðist ekki vera skýrari en svo að sýslumaður taldi sig ekki vera með það alveg á hreinu hvenær ætti að synja slíku. Síðan var bent á að það vantaði reglugerð um meðferð mála um skipta búsetu en við höldum áfram og vinnum með þetta í allsherjar- og menntamálanefnd.

Mig langar að velta aftur upp spurningunni sem ég var með í fyrra andsvari um útreiknaðar barnabætur. Allt hefur það áhrif á tekjur einstaklinganna ef við ætlum að fara að skipta öllu jafnt og þá er það spurning um útfærslur. Þær hafa ekki verið settar fram og það þarf að velta því upp hvort ekki hefði verið betra fyrir afkomu foreldra, og þar með barnsins, að t.d. skipta barnabótunum fyrst upp til helminga og skerða svo hlut hvors foreldris með tilliti til tekna. Það er hætt við að greiðslufyrirkomulagið sem er í frumvarpinu valdi verri afkomuhorfum fyrir foreldra og vinni jafnvel gegn tilgangi frumvarpsins, þ.e. skiptri búsetu sem ég tel svo óskaplega mikilvægt að náist í gegn því að ég tel það mikið jafnréttismál. Þetta er ekki alveg eins og ég myndi vilja hafa það. Það er líka hugmynd hvort það ætti að skipta bótunum eftir því hversu mikið börn eru hjá hvoru foreldri fyrir sig. Það gæti hins vegar orðið mjög flókið í útreikningi, eftir á og annað slíkt. Ég held að við þurfum að finna leið til að gera þetta réttlátt þannig að tekjulægra foreldrið, sem oft er móðirin, verði ekki fyrir skakkaföllum.