151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

barnalög.

11. mál
[16:51]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að óska hæstv. dómsmálaráðherra til hamingju með að vera komin með þetta mál hér fyrir þingið, eins og ég gerði reyndar í apríl þegar hún flutti það síðast. Það er í raun sorglegt að ekki skuli hafa náðst að afgreiða það á síðasta þingi en ýmislegt kom til. Ég sé t.d. að margar umsagnir bárust um þetta ágæta mál. En ég vona svo sannarlega að hv. allsherjar- og menntamálanefnd lánist að afgreiða þetta mál núna því að það er ofboðslega mikilvægt.

Ég efast ekki um að það er flækjustig í þessu eins og svo mörgu öðru eins og komið hefur verið inn á í ræðum. En mig langar að nefna eitt sem ég hef alloft tekið upp í tengdum málum — það þarf ekki þetta frumvarp til þó að ég viti að það mun svo sannarlega laga það — en það er hvernig börn og foreldrar eru skráð í þjóðskrá. Þá er ég að tala um það mjög svo gamla og úrelta fyrirbrigði sem er fjölskyldunúmer. Það þýðir að elsta kennitalan í viðkomandi fjölskyldunúmeri fær bréf um börn sem tilheyra viðkomandi fjölskyldu. Þannig getur verið að það sé ekki endilega foreldri viðkomandi barns, aðili sem fer kannski ekki með forsjá viðkomandi barns, sem fær þá bréf frá sjúkratryggingum eða öðrum opinberum aðilum um hagi viðkomandi barns.

Ég á svar frá hæstv. heilbrigðisráðherra á þskj. 819, sem birtist í janúar 2019, þar sem það kemur einmitt skýrt fram að raunverulega sé verið að brjóta á persónuvernd barna með þessu úrelta fyrirkomulagi þar sem flestir opinberir aðilar, og fleiri en opinberir aðilar, nota þjóðskrá og virðast eingöngu hafa tækifæri til að tengja börn við fjölskyldunúmer. Þetta er algjörlega út í hött. Ég minnist á þetta hér vegna þess að ég veit að frumvarpið mun að einhverju leyti koma í veg fyrir þetta. Það breytir ekki þeirri staðreynd, og ég veit að verið er að vinna að því á vettvangi Þjóðskrár, að mér finnst það taka allt of langan tíma. Miðað við umsagnir Þjóðskrár við þetta frumvarp þurfum við að spýta í þegar kemur að þessu tölvukerfi.

Nú á tímum eru flestir farnir að kunna mjög vel á Heilsuveru en ef foreldrar búa ekki saman og börn eru skráð á tvö heimili getur það foreldri sem ekki er með lögheimilisskráningu barnsins hjá sér ekki farið inn á Heilsuveru og bókað t.d. sýnatöku út af Covid, ef út í það er farið, það er kannski það sem flestir eru að gera akkúrat í dag. Það gæti aftur á móti foreldrið sem er með lögheimilið gert og líka maki þess foreldris. Þetta er algjörlega fáránlegt. Ég ítreka það enn og aftur að ég veit ekki hversu oft ég hef tekið þetta upp á þessum vettvangi. Því verður að breyta og því hefði auðvitað átt að vera búið að breyta fyrir nokkrum árum. Ég ætla því að hvetja hæstv. dómsmálaráðherra, þó að málaflokkurinn sem ég er að vísa í sé hjá hæstv. samgönguráðherra, sem fer með málefni þjóðskrár, til að keyra þá breytingu í gegn.

Eins mikilvægt og þetta mál er þá er það, þegar kemur að flækjustiginu, tengt fjármunum. Okkur þarf með einhverjum hætti að lánast að setja þetta lagaumhverfi, barnalögin, þannig upp að það þjóni fyrst og fremst hagsmunum barnanna og réttindum og tryggi skyldur foreldra. Ég vil miklu frekar tala um skyldur foreldra en endilega réttindi. Það er skylda foreldra að bera ábyrgð á börnum sínum. En með einhverjum hætti þyrftum við að geta tekið fjármálin út úr þessari breytu. Þá held ég að okkur tækist að leysa ansi margt. Enda er það það sem kemur fram hjá þeim sem þurfa að fara með þessi mál, þá er ég að vísa í mál sem eru flókin og sitja hjá sýslumanni og erfitt er að ná sátt í, það eru alltaf peningar. Fólk segir það aldrei, viðurkennir það aldrei, en á endanum snýst þetta oft um peninga. Ef okkur tekst með einhverjum hætti að taka þá breytu út, þegar við erum að fjalla um börn og réttindi barna og skyldur foreldra, þá held ég að við værum komin mjög langt.

Ég átta mig á því að þetta frumvarp mun ekki taka á ósætti en sem betur fer er það nú þannig að í langflestum tilfellum geta foreldrar komist að ágætu samkomulagi um uppeldi barna sinna þótt samvistum þeirra ljúki. Þá er mikilvægt að koma til móts við foreldra á þann hátt sem lagt er til í frumvarpinu. Það er algjörlega fáránlegt að við séum enn einhvern veginn að takast á við flókið kerfi þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki.