151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

kyrrsetning, lögbann o.fl.

16. mál
[17:27]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að fagna framkomu þessa frumvarps. Það var tími til kominn enda var alþjóð augljóst að breyta þurfti þessum lögum árið 2017 þegar sett var lögbann á umfjöllun Stundarinnar um fjármál þáverandi forsætisráðherra tveimur vikum fyrir kosningar.

Nú talar hæstv. ráðherra fyrir þingmáli sem hún segir að takmarka muni málsmeðferðartíma við nokkrar vikur. En ef við lítum til þess dæmis sem var tilefni þess að ég lagði fram frumvarp um að taka ákvarðanir um lögbann á tjáningu úr hendi sýslumanns og færa þær yfir til dómstóla þá réðu úrslitum þessar tvær vikur sem liðu, vegna þess að svo var kominn kjördagur og umfjöllunin fékk ekki að birtast fyrir kjördag. Og nú hafa dómstólar landsins úrskurðað, því miður miklu síðar en þeir áttu að gera, að þessi takmörkun, þetta lögbann gæti hafa haft áhrif á úrslit kosninganna og að það væri óásættanlegt í lýðræðisríki.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Þarf ekki að gera betur í máli eins og t.d. því sem ég vísa í, þ.e. lögbann á umfjöllun Stundarinnar, þar sem beinlínis liggur fyrir að það er umfjöllun um málefni sem varðar almenning í aðdraganda kosninga? Það er ekki ásættanlegt í lýðræðisríki að slík umfjöllun fái ekki að birtast fyrir kjördag. Það er bara ekki ásættanlegt. Hvernig kemur frumvarpið í veg fyrir að nákvæmlega sú saga endurtaki sig?