kyrrsetning, lögbann o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Auðvitað get ég ekki sagt nákvæmlega fyrir um hve löng málsmeðferðin verður, en við erum að stytta hana verulega með öllum þeim frestum og breytingum sem lögð eru til hér. Það er ljóst að því meiri hagsmunir sem eru undir, þeim mun nauðsynlegra er að frumvarpið sé afgreitt hratt. Það stendur skýrt í frumvarpinu og ég held að með þessu getum við afgreitt slík mál á örfáum dögum. En það er ljóst að þetta mun alltaf taka einhvern tíma svo gætt sé að öllu í málsmeðferðinni.
En hér er verið að leggja til mun hraðari málsmeðferðartíma, mun skemmri frest og farin besta leiðin sem fannst eftir að nefndin hafði legið yfir umbótum á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis. Hún lagði til ýmsar breytingar. Þessi breyting er ein af þeim og ég held að hér sé farin sú leið sem svarar best því kalli að þetta sé gert hraðar með tilliti til þeirra hagsmuna sem eru undir. Og eins tel ég að frestir séu orðnir það stuttir að það hljóti að vera orðið ásættanlegt með tilliti til friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsis.