kyrrsetning, lögbann o.fl.
Virðulegi forseti. Við förum þá leið í þessu frumvarpi að við erum ekki bara að hraða málsmeðferð og stuðla að flýtimeðferð, við erum að takmarka fresti og veita þá aðeins í undantekningartilvikum, þannig að þegar miklir hagsmunir eru í húfi getur þetta gengið afar hratt. Ég held að auki að það sé mikil breyting að það sé bráðabirgðatrygging, sem er þá meira íþyngjandi. Að sjálfsögðu þarf að meta lögbann og fjölmiðlaumfjöllun í takt við þá þætti sem liggja fyrir og það hefur gríðarleg áhrif á, eins og tjáningarfrelsið, sem við gerum ríkar kröfur til. Það reynir á mörk þess við aðra þætti, eins og friðhelgi einkalífsins. En lögbann af þessu tagi getur hamlað eða komið í veg fyrir lýðræðislega umræðu þegar tjáning um málefni sem varða almenning er takmörkuð að miklu leyti. Það tjón er mikið og þess vegna verður að meta slíkt með tilliti til tjáningarfrelsisins og þeirra sáttmála sem við höfum undirgengist, við erum með skýr ákvæði þess efnis. Ég held að með þessum breytingum séum við að svara því að þessi mál séu afgreidd mun hraðar og það þurfi mikið að koma til svo slíkt sé gert.