151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

kyrrsetning, lögbann o.fl.

16. mál
[17:35]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna á þessu frumvarpi. Ég er svolítið á svipuðum nótum og fyrri ræðumaður varðandi það að hversu brýnt það er að mál af þessu tagi séu afgreidd hratt og örugglega. Af því að ég er svo lausnamiðuð langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort aldrei hafi komið til greina að taka þetta verkefni einfaldlega frá sýslumönnum og færa beint inn í dóm.

Í lögum um meðferð sakamála er í XXVII. kafla fjallað um afbrigðilega málsmeðferð fyrir dómi. Maður veltir fyrir sér hvort sá kafli gæti ekki tekið á einmitt því þegar um er að ræða svo brýn mál, að þau eiga að vinnast mjög hratt. Lögmenn sem fást við þennan málaflokk, þ.e. sakamál og slík mál, eru mjög vanir því að vinna hratt og vinna þá jafnvel sólarhringum saman þegar svo ber undir. Ég sé því alveg fyrir mér að nákvæmlega þau lög og það ákvæði gæti tekið á þessu máli þannig að við sleppum því að tefja málin óheyrilega vegna þess hægagangs sem oft og tíðum er hjá sýslumannsembættum.