kyrrsetning, lögbann o.fl.
Virðulegur forseti. Slík leið var ekki lögð til af nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis, sem fór yfir þennan málaflokk í heild sinni varðandi hvar við gætum gert betur. Hún lagði til breytingar í þessa veru, sem hafa örlítið breyst síðan en ekki varðandi málsmeðferðina. Sú umræða var mögulega tekin þegar málið kom síðast til nefndar í þinginu, en við förum svipaða leið og lögð var til af þessari nefnd. Það er mikilvægt að halda því til haga að það verður enginn hægagangur í þessum málum eftir breytingarnar því að hér er verið að flýta málum eins og kostur er á öllum stigum.