kyrrsetning, lögbann o.fl.
Virðulegur forseti. Ég tel að með þeim hugmyndum sem hv. þingmaður viðrar hér þyrfti kannski að skoða lögbann í heild sinni, ekki einungis lögbann á birtingu fjölmiðlaefnis. Ef breyta ætti meðferð lögbannsmála í heild eða að miklu leyti þyrfti að skoða það í heild en ekki einungis varðandi þau atriði sem um er að ræða í þessu frumvarpi, og ekki taka það fyrir út fyrir sviga af því að það eru til fleiri tegundir af lögbönnum en þetta og væri hægt að tala um það almennt. Varðandi gjafsóknarspurninguna þá geta fjölmiðlar auðvitað sótt um gjafsókn, en það gerist ekki sjálfkrafa. Það er ekki tekið á því í þessu frumvarpi en þeir geta sótt um gjafsókn líkt og aðrir.