kyrrsetning, lögbann o.fl.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., lögbann á tjáningu. Ég vil, rétt eins og ég gerði í andsvari við hæstv. dómsmálaráðherra, fagna framlagningu þessa frumvarps. Ég tel það vissulega vera mikilvæga réttarbót, en mér finnst ekki nógu langt gengið. Mér finnst þetta frumvarp ekki til þess fallið að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig og að fjársterkum aðila takist að stöðva tjáningu og birtingu efnis frá fjölmiðli um valdamesta mann samfélagsins, tveimur vikum fyrir kosningar og halda gögnum leyndum fram yfir kosningar og gott betur.
Mér fannst líka skrýtið af hæstv. forsætisráðherra, sem skipaði nefndina um bætta vernd tjáningarfrelsis, að setja þetta ekki efst á forgangslistann. Breyting á lögum um lögbann var færð aftar á forgangslista þessarar nefndar en ýmsar aðrar úrbætur, sem voru vissulega líka mikilvægar. En ég hefði haldið að það væri knýjandi þörf og að það lægi gríðarlega mikið á því að koma í veg fyrir að jafn mikil skömm og jafn mikil aðför að lýðræðinu, eins og lögbannið á Stundina var, gæti átt sér stað aftur. Við skulum átta okkur á því að þetta vakti t.d. athygli Evrópuráðsins. Við komumst á tilkynningarlista sérstaks vettvangs fyrir frelsi fjölmiðla á vegum Evrópuráðsþingsins vegna þessa lögbanns, vegna þess að þetta var bara mjög alvarlegt inngrip í fjölmiðlafrelsi. Og þetta var mjög alvarleg árás á upplýsingarétt almennings í aðdraganda kosninga, það er alveg ótrúlegt. Mér finnst bara ótrúlegt að það hafi ekki haft í för með sér neinar afleiðingar fyrir manninn sem stóð fyrir þessu og kannaðist ekki einu sinni við tjáningarfrelsið, þ.e. sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu. Ég skil heldur ekki enn þá hvernig hægt er að standa að svona aðför að tjáningarfrelsinu og þykjast ekki einu sinni kannast við tjáningarfrelsi þegar hann er spurður út í þetta mál. Mér finnst það alveg ótrúlegt.
Ég tel að ef tekist hefði verið rétt á við þetta mál á sínum tíma værum við ekki í þeirri stöðu í dag að þurfa einhvern veginn að gulltryggja að ekki sé verið að setja lögbann á fjölmiðla tveimur vikum fyrir kosningar um jafn stórt og mikilvægt mál og þarna var til umræðu, vegna þess að í 24. gr. núgildandi laga stendur, með leyfi forseta:
„… ef sýnt þykir að stórfelldur munur sé á hagsmunum gerðarþola af því að athöfn fari fram og hagsmunum gerðarbeiðanda af að fyrirbyggja hana,“ — verði lögbann ekki lagt við athöfn — „enda setji gerðarþoli eftir atvikum tryggingu fyrir því tjóni sem athöfnin kann að baka gerðarbeiðanda.“
Ég hefði sagt að einhver sem hefur yfirleitt lesið tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar eða mannréttindasáttmála Evrópu eða kann á hvenær takmarka má mannréttindi og hvenær ekki og hvernig það er gert o.s.frv., meðalhóf og þess háttar, sem okkur lögfræðingum sem leggjum áherslu á mannréttindi er tamt að tala um, hefði þetta lögbann bara ekki verið samþykkt. En það var samþykkt og það þýðir að mínu viti, sér í lagi vegna þeirra svara sem komu frá sýslumanninum, að þessu embætti er hreinlega ekki treystandi fyrir tjáningarfrelsinu, að þessu embætti er ekki treystandi fyrir því að ákveða takmarkanir á tjáningarfrelsinu. Það þyrfti þá að koma til einhvers konar endurmenntun eða einfaldlega að færa þetta vald úr höndum sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Nú veit ég að núverandi sýslumaður lætur senn að störfum og ætlar að einbeita sér að skógrækt á næstunni. En við vitum ekki hver verður næsti sýslumaður. Við vitum ekki hversu mikla virðingu hann ber fyrir tjáningarfrelsinu og við vitum ekki hvort sett verði lögbann á tjáningu fjölmiðils daginn fyrir næstu kosningar, sem haft getur afgerandi áhrif á afstöðu kjósenda. Þetta frumvarp kemur ekki í veg fyrir það. Ef við værum bara með þá kröfu á Íslandi að einhver virðing sé borin fyrir réttarríkinu, að það væri ekki endalaus þjónkun við valdhafa í samfélaginu og að ekki væri endalaust verið að reyna að finna leiðir til að láta kerfið þjóna hagsmunum hinna valdameiri frekar en réttindum einstaklinga, hins almenna borgara til að vera upplýstur, ef við bærum bara virðingu fyrir réttarríkinu, virðulegi forseti, þá hefði þessi 24. gr. núgildandi laga, um kyrrsetningu, lögbann og fleira, dugað til að koma í veg fyrir jafn mikinn hörmungaratburð og þarna átti sér stað. Mér fannst virkilega sárt að sjá þetta, Ísland berja og brjóta svona á tjáningarfrelsinu.
Mögulega finnst núverandi stjórnvöldum þetta óþægilegt vegna þess að hæstv. forsætisráðherra er hæstv. fjármálaráðherra nú og fréttin var um hann og fjármálaumsvif hans í aðdraganda og kjölfar bankahrunsins 2008 og tengsl við m.a. Glitnisbanka. Mögulega er það þess vegna sem við erum núna, árið 2020, að afgreiða mál sem hefði átt að ganga í strax árið 2017 til að tryggja að jafn ólýðræðisleg aðför að lýðræðislegum rétti fólks til að vera upplýst fyrir kosningar myndi ekki endurtaka sig.
Ég man vel hvernig það var þegar ég lagði fram þingmannamál mitt í kjölfar þessarar aðfarar, hvernig það var talað niður og að það var enginn sérstakur samstarfsvilji hjá meiri hlutanum til að bæta frumvarpið sem ég kom með til að tryggja að þetta myndi breytast strax. Nei, málið þurfti að fara í nefnd, eins og svo oft með hluti sem tefja á út í hið óendanlega. Og nú erum við komin með afurðina. En þessi afurð tryggir ekki að sagan endurtaki sig ekki. Það eru vissulega vonbrigði, virðulegi forseti.
En þetta er skref í rétta átt og þess vegna fagna ég þessu frumvarpi og ég vona að það komist í gegn. Ég vona að við getum gert á því ásættanlegar úrbætur og ég vona virkilega, og í alvörunni að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu fái endurmenntun, fái þá þjálfun og þekkingu í borgararéttindum sem þarf til þess að standa vörð um réttindi einstaklinga, um réttindi borgaranna, um réttindi almennings til að fá vitneskju fyrir kosningar og þegar ekki eru kosningar. Ég vona innilega að það verði nægilegt fjármagn til þess að mennta starfsfólk þar og sýslumanninn sjálfan í því hvernig standa beri vörð um grundvallarréttindi fólks, vegna þess að þar virðist ýmislegt skorta á. Og það þarf enga lagasetningu til. Það þarf vilja og fjármuni og ákvörðun um að gera betur og ákvörðun um að ekki líðist að þverbrjóta réttindi almennings og réttindi fjölmiðla, hvort sem var í aðdraganda kosninga eða ekki. Það verði einhvers konar afleiðingar af því og að fólk læri af mistökunum. Ég fæ því miður ekki séð að það sé búið að gerast, virðulegi forseti, en ég vona svo sannarlega að það standi til bóta, vonandi með næstu og betri ríkisstjórn.