kyrrsetning, lögbann o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að segja að ég styð þetta mál en tek undir það með hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur að það gengur ekki nógu langt, og er reyndar ansi langt í að við göngum nógu langt í því að koma hér á afgerandi lagalegri sérstöðu hvað varðar vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Ég er ekki að orða þetta svona að gamni mínu heldur vegna þess að það er titill þingsályktunar sem samþykkt var hér á hinu háa Alþingi fyrir meira en tíu árum. Hún hét þingsályktun um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Hún var samþykkt á Alþingi 16. júní 2010, fyrir áratug, eins og ég sagði. Það er margt fallegt í henni. Nú löngu síðar veldur sumt af því sem þar stendur því að ég fæ kjánahroll, því miður, með hliðsjón af því hve bölvanlega okkur gengur við að hafa frumkvæði í því að verða best í tjáningarfrelsi. En það er með það eins og svo margt hér á Íslandi, í pólitíkinni, að það er ofboðslega mikill vilji hjá stjórnmálamönnum hér og þar til þess að vilja eitthvað en þegar kemur að því að raungera það þá er alltaf eitthvað annað mikilvægara eða allt reynist miklu flóknara en það leit út fyrir að vera, eða þá að það kostar fórnir í einhverju. Þá allt í einu þarf að þurrka allt út af borðinu og annaðhvort byrja upp á nýtt eða, sem er líklegra, gleyma því bara að þetta hafi nokkurn tímann gerst.
Ísland er nefnilega ekki með afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Og ekki bara það, heldur erum við eftirbátar í tjáningarfrelsi og á sumum sviðum þannig að það er eiginlega til skammar. Blaðamaðurinn Erla Hlynsdóttir hefur t.d. unnið þrjú mál gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Mér skilst að búið sé að laga eitthvað af þeim lagalegu vanköntum sem þá hrjáðu, án þess að ég hafi sökkt mér í lagatæknileg undirstöðuatriði þeirra dóma.
Við heimiluðum guðlast fyrir fimm árum, það að særa trúarsannfæringu einhvers. Svo er það önnur löggjöf sem ég ætla ekki að þreyta fólk á að nefna í milljónasta skipti, en hún hefur verið til umræðu síðustu daga. Við látum duga að segja að við séum eftirbátar og við séum með löggjöf hér sem hamli tjáningarfrelsi, og allir útlendingar sem ég tala við hvá og spyrja: Hvers vegna er þetta bannað? Ég gef svörin. Sumt fólk telur að þetta sé mjög slæmt og hafi neikvæð áhrif og svoleiðis, en það kemur auðvitað í ljós að við erum á byrjunarstigi í þeirri umræðu og það er umræða sem þegar hefur farið fram í flestum öðrum löndum, eða svo gott sem. Þau þjóðríki sem við berum okkur saman við eru einfaldlega komin lengra en við. Við erum eftirbátar í tjáningarfrelsismálum. Mér þykir það mjög leiðinlegt vegna þess að þingsályktunin sem ég nefndi frá 2010 var með háleit markmið. En það vekur líka athygli að hún var lögð fram í ótrúlega mikilli sátt. Það voru margir meðflutningsmenn, það voru 50 atkvæði með en einn þingmaður sat hjá, mig minnir reyndar að hann hafi verið varaþingmaður á þeim tíma og þá kannski ekki treyst sér til að greiða atkvæði vegna þess að hann hefur rétt verið kominn inn á þing, eða hvað það er, ég þekki það ekki. En alla vega var ríkur samhljómur um þá hugmynd að Ísland skapaði sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis.
Og hvað svo, virðulegi forseti? Þetta var ákvörðun Alþingis. Þetta var það sem Alþingi vildi gera. Og hvað gerist síðan? Það kemur því miður í ljós að á okkar elskulega Íslandi er tjáningarfrelsishefðin mjög veik, og hefur alltaf verið. En það áhugaverða er að flestir Íslendingar, og að minni reynslu sér í lagi stjórnmálamenn, telja hefð fyrir tjáningarfrelsi og gildið hér á Íslandi alveg sérstaklega sterkt. Hvernig stendur á því? Ég held að það sé vegna þess að þegar fólki finnst einhver hugmynd svolítið klikkuð þá finnst því rosalega göfugt og mikið að aðhyllast þó smávegis af henni, það ofmetur hversu framarlega við erum vegna þess að normið, staðallinn, núllpunkturinn, er svo lágur að allt sem er yfir honum þykir ægilega gott, þegar reyndin er sú að við erum þokkalega langt eftir á. Það er staðan með tjáningarfrelsi á Íslandi og hefur verið eins lengi og ég man eftir mér.
Það er hægt að nefna mál eins og Glitni HoldCo á móti Stundinni eins og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fór vel yfir áðan í ræðu sinni. Það er hægt að nefna mál blaðamannsins Erlu Hlynsdóttur gegn íslenska ríkinu og það er hægt að tala um guðlast og það er hægt að tala um þetta allt saman. Það sem jafnan kemur þá upp í umræðunni er það sem ég ætla að kalla lagahyggja, hún er mjög rík á Íslandi, ekki bara í þessum málaflokki heldur almennt. Þá virðist grunnhugsunin vera sú að ef eitthvað er í samræmi við lög, alþjóðasáttmála og stjórnarskrá þá sé það í lagi. Jafnvel þó að við notum þann mælikvarða erum við eftirbátar og ekki að standa okkur, samanber glæsilega ræðu hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur hér áðan; jafnvel þó að við tökum bara lagabókstafinn og alþjóðasáttmála fyrir og berum það saman við þetta mál og það ágæta frumvarp sem hv. þingmaður lagði fram hér áður.
Virðulegi forseti. Það sem vantar líka nýtt í umræðuna er hugmyndafræðin. Það er hugmyndin á bak við tjáningarfrelsi, ekki bara það að við höfum samþykkt samninga frá útlöndum eða tekið upp stjórnarskrárbreytingu frá útlöndum, meðan ég man, heldur vegna þess að tjáningarfrelsið er gott. Það er gott fyrirbæri. Það er undirstaða lýðræðisins, ekki bara þannig séð og pínulítið heldur algerlega. Og ekki bara á þann hátt að við getum sett fram upplýsingar um ráðherra eða yfirvöld hverju sinni heldur að við getum tjáð okkur sem manneskjur, að við getum rætt hvernig okkur líður, jafnvel þó að einhverjum öðrum sé illa við það, jafnvel þó að einhver annar móðgist, jafnvel þó að einhverjum öðrum finnist það hugsanlega hættulegt. Það er mikilvægt að hafa það frelsi og það er gott að hafa það frelsi. Það er ekki fórn.
Því miður, er ég tvíta við vini mína og félaga á Íslandi, er yfirleitt það fyrsta sem þarf að athuga, þegar barist er fyrir tjáningarfrelsi, að tína til nógu margar og allar hugsanlegar réttlætingar fyrir því að takmarka það. Umræðan fer næstum því alltaf í þá átt. Við þurfum samt að passa að þetta megi ekki, við þurfum samt að passa að hitt megi ekki og annað. Við erum ekki á þeim stað, hvorki lagalega né hugmyndafræðilega, að við ættum núna að vera að einbeita okkur að því að passa hvar tjáning sé óheimil. Þvert á móti. Við þurfum að taka okkur saman í andlitinu, þegar kemur að tjáningarfrelsi, hvort sem við nálgumst það út frá lagahyggju eða út frá hugmyndafræðinni sem tjáningarfrelsið byggir á.
Ef við ætlum að fara eftir vilja Alþingis árið 2010 þurfum við ekki bara að taka okkur á, við þurfum að ganga lengra en þau þjóðríki sem við berum okkur saman við. Þá dugar ekki til að segja að einhver lög uppfylli ákvæði stjórnarskrár Íslands. Þá dugar ekki til að löggjöfin uppfylli skilyrði alþjóðasáttmála eins og mannréttindasáttmála Evrópu. Það eina sem dugar til þess að við verðum með afgerandi lagalega sérstöðu varðandi tjáningar- og upplýsingafrelsi er að við trúum því sjálf raunverulega að það sé gott að fólk geti tjáð hluti sem öðrum er illa við, sem geta komið öðrum illa. Þegar hingað er komið í umræðunni er venjulega svarað eitthvað á þá leið að við getum ekki haft algjört tjáningarfrelsi, það megi ekki, það þurfi að vera einhverjar takmarkanir — samanber það sem ég sagði áðan að það virðist vera útgangspunkturinn í íslenskri tjáningarfrelsisumræðu að umfram allt verði að passa að fólk megi ekki segja of mikið. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Síðan getum við heimilað hina eða þessa tjáningu ef við erum búin að grandskoða það að hún sé alveg örugglega örugg og skemmi ekki neitt fyrir neinum og enginn móðgist eða verði sár.
Virðulegi forseti. Við erum mjög langt frá því að heimila allt. Þar sem við þurfum og eigum að hafa takmarkanir á tjáningarfrelsi, ég er ekki að segja að þær eigi ekki að vera einhverjar, eiga þær að vera þokkalega skýrar. Það á að vera þokkalega skýrt á hvaða forsendum við leyfum okkur að takmarka tjáningarfrelsið. Það hlýtur að vera, að mínu mati, og ég hef ekki enn heyrt rök gegn þeirri nálgun, þegar tjáning brýtur í bága við skilgreind réttindi annarra, ekki tilfinningar annarra, ekki skoðanir annarra heldur réttindi. Réttindi eins og friðhelgi einkalífsins. Ég hef sjálfur lagt fram frumvarp um að banna dreifingu á því sem í dag er kallað myndrænt kynferðisofbeldi, hefur verið kallað stafrænt kynferðisofbeldi, hrelliklám og hefndarklám og ýmislegt fleira í gegnum tíðina, myndrænt kynferðisofbeldi í dag. Það takmarkar tjáningarfrelsi en af góðri ástæðu. Það að dreifa slíku brýtur á friðhelgi einkalífs annars einstaklings. Það er lögmæt takmörkun á tjáningarfrelsi. Fólk á rétt á sanngjarnri málsmeðferð fyrir dómstólum. Í hræðilegu sakamáli sem átti sér stað nýlega á Íslandi fréttist til að mynda að blaðamenn hefðu hringt í aðila sem hefði getað upplýst hinn grunaða um að hann væri grunaður. Það stefnir í voða rétti einhvers til þess að fá sanngjarna málsmeðferð fyrir rétti. Það er eðlilegt að takmarka slíkt, virðulegi forseti. En það er ekki það sem við gerum þegar við bönnum guðlast. Það er ekki endilega það sem við gerum þegar lögbann er sett. Það bann er oft sett til að vernda eignarrétt, réttindi, eitthvað þess háttar. Ég er ekki að segja að lögbann sé alltaf rangt. Það er ekki hægt að segja að það sé alltaf rangt að banna einhverja tjáningu en það þarf að vera byggt á því að verið sé að brjóta gegn skýrum réttindum. Hótanir eru t.d. öryggisbrot. Fólk á rétt á því að vera öruggt, rétt á því að þola ekki ofbeldi. Þess vegna er réttmætt að takmarka hótanir. Það er enginn vandi að takmarka tjáningarfrelsi upp að því marki sem við þurfum að gera í frjálsu lýðræðissamfélagi með því að gera það út frá þeim réttindum sem við viljum verja. Það er ekkert rosalega flókið, virðulegi forseti. En vegna andvaraleysisins í íslenskri menningu gagnvart tjáningarfrelsi þá gerum við það almennt ekki. Við kvittum á Alþingi upp á glæsilega og fallega þingsályktun. Við viljum öll búa í þeim heimi þar sem hlutirnir eru svona. En ég held stundum að við trúum ekki á að sá heimur séu raunverulega mögulegur. Ég veit ekki alveg hvaðan sú vantrú kemur. Ég veit ekki alveg hvað það er nákvæmlega sem fólk óttast svo mjög við það að Ísland verði best í tjáningar- og upplýsingafrelsi.
Að lokum vil ég nefna c-lið þingsályktunarinnar sem var samþykkt á Alþingi 16. júní 2010. Þar er lagt til að kannaðir verði möguleikar á því að koma á fót fyrstu alþjóðaverðlaununum sem kennd yrðu við Ísland, íslensku tjáningarfrelsisverðlaununum.
Virðulegi forseti. Það er eiginlega þessi liður sem veldur því að ég fæ pínulítinn kjánahroll nú þegar hingað er komið. Þetta var fallegt 2010, var sigur 2010 fyrir tjáningarfrelsið. En núna er þetta ekki alveg það. Við erum hér að bregðast við einhverri stöðu sem er komin upp eins og gerist gjarnan, en einhvern veginn vantar frumkvæðið. Það vantar sannfæringuna fyrir því að tjáningarfrelsið sé raunverulega gott, hugmyndafræðilega, siðferðislega, menningarlega, ekki bara lagatæknilega eins miklu máli og lagatæknin þó skiptir. En þó að þessi þingsályktun sé að mínu mati í öllum meginatriðum hunsuð með þeim langa tíma sem hefur liðið síðan hún var samþykkt þá ætla ég að halda í hana sem hinn fallega draum sem ég gef ekki upp á bátinn. Ég vona að Íslendingar geri það ekki heldur.