almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra framsöguna. Ég vil fagna framlagningu þessa frumvarps. Ég tel það mikilvæga réttarbót. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um tengsl ákvæðisins við nálgunarbann, þ.e. hvernig brotaþolar eiga eftir að fóta sig í kerfinu, þeir sem verða fyrir umsáturseinelti og kæra það. Mun ferlið við nálgunarbann hefjast sjálfkrafa? Tengjast þessi tvö ákvæði á einhvern hátt í kerfinu? Hvernig verður því fyrirkomulagi háttað?
Mig langar líka til að spyrja hæstv. ráðherra út í setningu sem ég sé í greinargerð með frumvarpinu, að það feli ekki í sér neinn kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Nú er þetta nýtt ákvæði í hegningarlögum sem lögreglunni verður falið að framfylgja og sem borgararnir þurfa væntanlega að vera meðvitaðir um. Er engin þörf á að eyða alla vega einhverjum smápeningum í að kynna þetta fyrir almenningi, í að samræma verklag hjá lögreglu, í að koma upp einhvers konar góðu kerfi í kringum þetta til að tryggja að lögunum verði framfylgt? Við höfum séð, t.d. eins og hæstv. ráðherra bendir sjálf á þegar kemur að nálgunarbannsmálum, að það hefur ekki alltaf verið nógu skilvirkt, þolendur upplifa sig oft úrræðalausa og að kerfið er allt of svifaseint að bregðast við. Er nægilega tryggt að með setningu laganna verði þetta ástand lagað eða mætti mögulega gera einhverja gangskör að því?