almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr í fyrsta lagi um tengsl ákvæðisins við nálgunarbann. Auðvitað geta þetta verið mjög náin ákvæði og í raun verið nýtt saman. Það er mikilvægt að nálgunarbann er ráðstöfun en ekki sérstök refsiheimild en brot á nálgunarbanni er síðan refsiákvæði. Það hefur kannski ekki nýst sem skyldi til að taka á því sem við sjáum að fellur svo vel undir umsáturseinelti. Við erum að setja það fram núna með hærri refsiramma og mun skýrari heimildum. Við sjáum það í dómaframkvæmd að oft fellur þessi hegðun ekki nákvæmlega undir ýmis ákvæði í hegningarlögum um ofbeldi eða hótanir. Þá hefur lögreglunni reynst erfitt að finna nákvæmlega hvar þessi hegðun og þessi síendurtekna háttsemi á heima. Það verður auðvitað mat hverju sinni hvort þörf er á að nota nálgunarbann með úrræðinu, hvort þetta sé notað með broti á nálgunarbanni eða hvernig málinu sé háttað. Öll mál eru auðvitað einstök og erfitt að segja til um þetta. En auðvitað geta ákvæðin nýst saman. Og kannski styrkir það einmitt stoðir nálgunarbannsins, eins og við höfðum hugsað það, að skýrari refsiheimild sé fyrir þessa háttsemi sem leiðir svo oft til nálgunarbannsins.
Varðandi þann kostnað sem hv. þingmaður nefnir þá höfum við síðustu ár bætt við um 6 milljörðum til lögreglunnar. Sérstakir fjármunir hafa farið í aukarannsakanda hjá hverju einasta embætti sem á sérstaklega að horfa til ofbeldisrannsókna, kynferðisofbeldis þar á meðal. Það hefur reynst vel við að reyna að flýta málsmeðferð. Ég bind miklar vonir við að það verði auðvitað forgangsraðað. Við erum að reyna að hraða allri þessari málsmeðferð. En aðallega mun ákvæðið auðvelda afgreiðslu lögreglunnar, að hún geti nýtt (Forseti hringir.) heimildir til að refsa með skýrum hætti fyrir þessa háttsemi.