151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

mannanöfn.

161. mál
[18:53]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsöguna. Ég vildi koma aðeins að því sem hæstv. ráðherra nefndi í framsögunni, þeirri gagnrýni sem þetta fyrirkomulag hefur þurft að sæta, þ.e. núverandi fyrirkomulag, mannanafnanefnd o.s.frv. Um þetta er fjallað á bls. 5 í frumvarpinu. Mig langar að fá nánari útlistun á því frá hæstv. ráðherra hvaðan þessi gagnrýni er komin, hvort hún komi frá fræðasamfélaginu og að hvaða þáttum hún lýtur nákvæmlega. Hefur þessi gagnrýni birst t.d. í tímaritum, greinum eða álitsgerðum? Hvers eðlis er hún? Er verið að gagnrýna fræðileg vinnubrögð? Gagnrýni er náttúrlega þungt orð og hana þarf að rökstyðja. Þess vegna hefði ég viljað fá nánari útlistun á þessu hjá hæstv. dómsmálaráðherra.

Ég er þeirrar skoðunar, herra forseti, að það sé mikilvægt að vernda og varðveita íslenska tungu. Það eru til reglur um stafsetningu og málfræði og það er engin ástæða í mínum huga til að undanskilja mannanöfn í þeim efnum.

Andi þessa frumvarps er frjálslyndur, það hefur komið hér fram, og hæstv. ráðherra sagði það í sinni ræðu að fólki sé treyst til að viðhalda menningu og siðum sem hafi merkingu fyrir það sem hluti af stærri heild. En má ekki spyrja hæstv. ráðherra hvort í þessu felist ekki mótsögn, þ.e. að vilja varðveita íslenska tungu og fela síðan einstaklingum fullkomið frelsi til að stafsetja nafn sitt? Á þetta hefur mannanafnanefnd nefnilega lagt áherslu í störfum sínum og þar eru jú okkar sérfræðingar sem við eigum að hlusta á. Ef hæstv. ráðherra gæti svarað þessu, hvort ekki sé um mótsögn að ræða (Forseti hringir.) og auk þess, eins og ég nefndi áðan, hvort þessi gagnrýni á fyrirkomulagið komi frá fræðasamfélaginu, sem við eigum væntanlega að hlusta á þegar kemur að svona (Forseti hringir.) mikilvægum málaflokki.