mannanöfn.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Okkar helsti sérfræðingur í þessum málaflokki er dr. Guðrún Kvaran sem hefur unnið við rannsóknir á íslenskum mannanöfnum í rúma þrjá áratugi. Það er athyglisvert að til hennar var ekki leitað þegar unnið var við þetta frumvarp. Frumvarp sem var áþekkt þessu var lagt fram á 148. löggjafarþingi og um það sagði dr. Guðrún Kvaran, með leyfi forseta:
„Frumvarp það sem hér er til umfjöllunar er ekki liður í að styðja íslenska tungu sem á undir högg að sækja eins og margoft hefur verið bent á á liðnum vikum og mánuðum. Nöfn og beyging þeirra eru jafn mikilvæg og allur annar íslenskur orðaforði og riðlist beygingarkerfið fer að hrikta í stoðum íslenskrar tungu.“
Þetta eru varnaðarorð dr. Guðrúnar Kvaran sem hún kom á framfæri í umsögn við frumvarp sem var flutt fyrir ekki svo löngu síðan og var mjög áþekkt þessu frumvarpi. Svo það sé sagt, herra forseti, þá er einn af okkar færustu sérfræðingum í þessum málaflokki á öndverðum meiði við þá sérfræðinga sem hæstv. dómsmálaráðherra nefndi áðan.
Á bls. 6 í frumvarpinu er getið um þessa könnun, sem hæstv. ráðherra kom inn á áðan, á vegum Félagsvísindastofnunar. Þar hafi rúmlega 1.400 einstaklingar verið spurðir og 60% þeirra vildu að reglurnar yrðu rýmkaðar þegar kemur að mannanafnalögum. Sem dæmi um hvaða reglur ættu að gilda um mannanöfn nefndu flestir að ekki ætti að heimila nöfn sem gætu orðið barni til ama og ég held að allir séu sammála um það. Næstflestir nefndu að þörf væri á reglum um íslenskar málvenjur og fallbeygingu nafna.
Ég er þeirrar skoðunar, herra forseti, að þetta frumvarp vegi svo sannarlega að íslenskri málvenju og ég held að það sjái allir sem hafa lesið frumvarpið. Maður spyr: (Forseti hringir.) Er í raun verið að fara eftir þessari niðurstöðu könnunarinnar? Ef svo er og hæstv. ráðherra telur svo vera á þá að stjórnast (Forseti hringir.) af könnunum, hæstv. dómsmálaráðherra? Eigum við að stjórnast af einhverjum könnunum og breyta þar með lögum út af þeim?