151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

mannanöfn.

161. mál
[19:03]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra um mannanöfn. Það verður að segjast eins og er að mannanafnalögin eru barn síns tíma því að auðvitað er það réttur foreldra að ráða nafni barna sinna og um leið ætti það að vera sjálfsagður réttur fullorðins fólks að ráða eigin nafni. Það er fátt sem fólki þyki jafn persónulegt og eigið nafn. Sjálfri þykir mér mjög vænt um mitt nafn, en gildandi mannanafnalög úr ríkislista yfir samþykkt eiginnöfn eru auðvitað hamlandi fyrir persónulegan, sjálfstæðan rétt fólks. Ég held að það sé ekki hægt að segja annað. Það er skerðing á réttindum fólks til að ráða eigin lífi og slíkar skerðingar þarf að rökstyðja. Ég held við hljótum að vera sammála um að í nútímasamfélagi sé sönnunarbyrðin á þeim sem skerða vilja réttinn en ekki á þeim sem auka vilja frelsi fólks.

Hér var nýverið samþykkt frumvarp um kynrænt sjálfræði. Þar var fellt brott ákvæði mannanafnalaga þar sem segir að stúlku skuli gefa kvenmannsnafn og dreng karlmannsnafn. Sú staðreynd kom t.d. í veg fyrir að stúlka gæti fengið nafnið Blær, sem dómstólar þurftu að endingu að kveða á um að skyldi ekki bannað, þ.e. að stúlka mætti heita Blær. Það var niðurstaða dómstóla þrátt fyrir að sérstaklega væri tekið fram í greinargerð með mannanafnalögum að stúlkur mættu ekki bera það tiltekna nafn. Sama gildir um nafnið Alex. Það er rík hefð fyrir því víða á Vesturlöndum að bæði drengir og stúlkur beri þetta nafn. Því hefur nú verið breytt hér en þar með hefur skrefið einungis verið stigið til hálfs, því að rétturinn til nafns er viðameiri og fjölbreyttari en svo að afnám þessarar tengingar við kyn útiloki þann rétt eða útiloki þetta óréttlæti.

Frumvarpi dómsmálaráðherra svipar heilmikið til frumvarps Viðreisnar sem lagt var fram á 148. og 149. þingi. Það frumvarp var að vísu fellt á þingi. Það var fyrir mína tíð. Ég varð ekki vitni að því en skoðaði málsmeðferðina aðeins og sá að málið var rætt í allsherjarnefnd á heilum 19 fundum en var síðan fellt 20. júní 2019. Einhverjum þætti kannski dálítið broslegt að sjá þá aftur núna afar keimlíkt frumvarp komið fram, en nú af hálfu stjórnarinnar sjálfrar. En gott og vel, það er sama hvaðan gott kemur. Vissulega er þetta ekki alveg sama frumvarpið en keimlíkt þó.

Mig langar til að vísa í fallega ræðu hæstv. ráðherra þegar mælt var fyrir málinu í fyrra skiptið. Hún sagði, með leyfi forseta:

„Nöfn eru alls konar. Þau gera lífið fjölbreytt og skemmtilegt.“

Ég held að það sé ákveðinn sannleikur fólginn í þessum orðum hennar. Aðrir þingmenn ríkisstjórnarinnar voru ekki jafn jákvæðir. Samflokksmaður ráðherra, hv. þm. Brynjar Níelsson, lýsti því yfir að mannanafnahefðin sem lagt væri til að breyta væri menningarverðmæti. Það mætti liðka til í henni en hún væri samt menningarverðmæti. En íslenska nafnahefðin þróaðist í aldanna rás án þess að um hana giltu nokkur einustu lög, án þess að starfandi væri mannanafnanefnd. Ég er sammála hv. þm. Brynjari Níelssyni um að hér sé um menningarverðmæti að ræða en ég er ósammála honum um að það sé okkar að stjórna því hvernig menningin okkar þróast. Okkur tókst vel sem þjóð að standa vörð um þessa nafnahefð okkar og það var ekki fyrr en fyrir um rúmri öld sem mönnum hugkvæmdist að setja lög til að verja hefðina. Góðar hefðir standa og góðar hefðir lifa. En þær breytast líka. Þær lifa með okkur mannfólkinu og ég held að það sé ekki leiðin til að varðveita menninguna að hafa starfandi ríkisnefnd um hana. Þetta er mál sem lýtur kannski ekki að flóknara atriði en því að smekkur okkar er ólíkur. Hef ég smekk fyrir öllum þeim nöfnum sem eru að ryðja sér til rúms? Nei, ég er frekar íhaldssöm hvað varðar smekk á nafngiftum. En lít ég svo á að það sé mitt eða annarra að ákveða hvaða nöfn annað fólk velur börnum sínum eða að það sé nefndar að eiga lokaorðið um það? Það finnst mér ég ekki geta sagt og mér finnst að nefnd eigi ekki að hafa það hlutverk. Sá réttur er ekki okkar hinna. Nöfnin eru í mínum huga ekki bara menningarverðmæti heldur einn angi tjáningarfrelsisins. Við verjum ekki tjáningarfrelsi með því að banna hallærislegar skoðanir heldur einmitt með því að leyfa þær. Þess fyrir utan er tungumál okkar í stöðugri þróun og ég get ekki séð annað en að við verðum einfaldlega að leyfa nafnahefð okkar að þróast með málinu til lengri tíma litið og að við verðum að treysta fólki til þess, jafnvel þó að það detti inn ljót og hallærisleg nöfn með.

Á þessum nótum hefur þróunin verið á hinum Norðurlöndunum, fólk er t.d. aftur farið að gefa börnunum sínum kenninöfn sem enda á -son og -dóttir. Það er að mínu mati fagnaðarefni og rammar það inn að þær takmarkanir sem við búum við hafa verið talsverðar og eru ekki nægjanlega vel rökstuddar. Rökin að baki þessum hömlum og takmörkunum eru ekki þau að leiða okkur að þeirri niðurstöðu að hér þurfi að vera starfandi nefnd sem segi foreldrum hvað börnin þeirra eiga og mega heita. Á mannanafnaskrá í dag eru um 4.000 nöfn. Danir eru líka með skrá yfir lögleg nöfn en þeirra starf safn er tífalt stærra. Ég hef ekki heyrt að mikið sé verið að ræða það í Danmörku að berjast fyrir frekari takmörkunum á nafnavali. Þvert á móti hefur þar verið til umræðu að tímabært sé að afnema skrána.

Síðast þegar hér voru til umræðu breytingar á mannanafnalögum kom fram það sjónarmið að börnum yrðu gefin nöfn sem kynnu að verða þeim til ama. Ég hef ákveðinn skilning á því sjónarmiði og er sjálf fremur íhaldssöm á nafngiftir, eins og áður sagði. En við treystum foreldrum til að taka margar stærri og veigameiri ákvarðanir sem kunna eða kunna ekki að verða börnum til ama. Nafnið er að endingu alltaf spurning um að það er smekksatriði. En foreldrar hafa tekið ákvarðanir um klæðaburð, skólavist, frístundir og fleira án þess að starfandi séu nefndir á vegum hins opinbera. Þetta eru allt veigamiklar ákvarðanir í lífi ungs barns sem við treystum foreldrum til að taka. En jafnvel í löndum þar sem engar takmarkanir eru til staðar í nafngjöf er það vitaskuld sjaldgæft að foreldrar séu vitandi vits eða markvisst að reyna að valda börnum sínum ama með því að gefa þeim meiðandi nöfn, og ef það er gert þá er það sennilega til merkis um að fleira sé að í uppeldi barnsins en nafngjöfin ein. Síðast þegar þetta mál var til meðferðar, eða hliðstætt mál um mannanöfn, var lagt til að meiðandi nafngjöf gæti verið erindi af þeim toga að það færi einfaldlega inn á borð barnaverndaryfirvalda, því að við höfum starfandi nefndir sem varðveita börn með þeim hætti.

Þess vegna vona ég að tillaga hæstv. dómsmálaráðherra í frumvarpi hennar, um að Þjóðskrá verði fengið það hlutverk að úrskurða um gildi annarlegra nafna, sefi þessar áhyggjur að einhverju leyti. Ég er sjálf hlynnt því að slíkur varnagli sé hafður í þessu frumvarpi. Varðandi frumvarpið sjálft þá er það í mínum huga tímabært. Ég held að við séum komin á þann stað að þetta sé skref sem þurfi einfaldlega að taka. Rökin eru frelsisins megin í þessu máli. Skerðingar á rétti fólks að þessu leyti, til eigin nafns, ganga mjög nærri persónu. Það felast mun ríkari hagsmunir í því fyrir íslenskt samfélag að einstaklingar fái að heita þeim nöfnum sem þeir velja sér, en að viðhalda boðum og bönnum núgildandi laga um mannanöfn. Rökin fyrir þungum og miklum takmörkunum eru ekki fyrir hendi. Í um þúsund ár hafði íslenska þjóðin fullt og óskorað frelsi til að nefna börn sín þeim nöfnum sem hún kaus. Og nú held ég að sé orðið tímabært að veita þjóðinni þetta frelsi að nýju. Hér er vitaskuld um tilfinningamál að ræða. Ég hef allan skilning á því og mér finnst raunar eðlilegt að tilfinningar séu í spilinu varðandi mannanöfn og um þætti eins og hefðir og venjur, en opinber nefnd heldur ekki lífi í menningu okkar. Til þess er fólkið sjálft betur fallið.