mannanöfn.
Frú forseti. Við ræðum hér mannanöfn, en það er eitt af þeim málum sem verið hafa umdeild eins og rakið var hér áðan. Eflaust á eftir að ræða það mikið og vel í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég vil segja það hér, fyrir hönd Vinstri grænna, að skoðanir eru afskaplega skiptar í þingflokknum og af ýmsum toga. Sjálf er ég dálítið íhaldssöm um leið og ég vil ákveðið frjálsræði í þessu. Helstu athugasemdir okkar hafa verið varðandi íslenskt mál og kenninafnahefðina. Sumir höfðu athugasemdir vegna þess að taka mætti upp ný ættarnöfn eins og enginn væri morgundagurinn. Varðveisla íslenskrar tungu er kannski það sem við höfum rætt hvað mest og svo veltum við líka fyrir okkur þessu hlutverki Þjóðskrár.
Þetta veltir kannski ekki íslenskunni algerlega um koll en er samt partur af því að varðveita hana. Við erum að berjast við enska tungu á mjög mörgum vígstöðvum og við erum í litlu málsamfélagi. Við þurfum að koma því þannig fyrir að alls staðar þar sem við getum því við komið sé íslenskan viðhöfð. Hæstv. ráðherra vitnaði hér í dr. Ármann Jakobsson og ég ætla líka að gera það. Hann telur eðlilegt að frelsi í nafngiftum sé eins mikið og kostur er en segir svo að annað og ekki síður mikilvægt sjónarmið sé hins vegar það að þjóðtungan, sem á að nota á öllum sviðum íslensks þjóðlífs, eins og segir í lögunum, njóti jafnframt verndar í mannanafnalögum og ágreiningsatriði um túlkun á því hvað teljist íslensk málhefð hafi ekki þær afleiðingar að íslensk mannanafnahefð leggist af. Þess vegna sé mikilvægt að við þetta lagafrumvarp verði bætt ákvæðum sem styðja betur við íslenska tungu og mannanafnahefð. Undir það vil ég taka. Það er auðvitað gaman, þegar maður er að ferðast erlendis, að fólk tekur eftir því að við erum kennd við foreldra okkar, flest við föður. Fólki finnst það áhugavert að við séum ekki kennd við maka okkar, við sem þá eigum.
Mig langar að fara aðeins í gegnum nokkur atriði, t.d. réttinn til upptöku ættarnafna. Sá réttur er takmarkaður í dag eins og við þekkjum og óheimilt hefur verið að taka upp nýtt ættarnafn. Mér finnst dálítið mikið vera opnað þegar allir geta beinlínis tekið upp ný ættarnöfn, þ.e. þeir sem hafa kannski ekki borið þau áður eða ekki fengið þau í arf. Ég skil hins vegar og ætla ekkert að draga úr því að í ljósi þeirra breytinga sem hér hafa verið ræddar, m.a. um kynrænt sjálfræði og annað slíkt, erum við að breyta ákveðnum greinum sem ég tel að sé skynsamlegt. En ég sé ekki alveg þörfina fyrir því að taka upp ný íslensk ættarnöfn, eða kannski þurfa þau ekki einu sinni að vera það. Ég tel að aðrar reglur gildi um fólk sem flytur til landsins og ber sín nöfn. Ég hef ekki á móti því að fólk haldi sínum ættarnöfnum. En mér finnst skipta máli hvernig þetta er til komið. Mér finnst ekki endilega eðlilegt að ættarnöfnum fjölgi einhver ósköp. Það eru ákveðnar reglur sem halda sér, sem er gott.
Ég nefndi líka Þjóðskrá. Ég veit ekki alveg hvort það er rétti aðilinn til að setja úrskurðarheimildina á. Eru einhverjir sérfræðingar innan Þjóðskrár sem eru til þess fallnir, eða erum við bara að miða við hyggjuvitið sem er oft og tíðum ágætt? Í mannanafnanefnd erum við með fólk sem er til þess bært að úrskurða um nafngiftir og þá fyrst og fremst út frá þeim lögum sem í gildi eru í dag. Ég er ekki sannfærð um að aðilar innan Þjóðskrár séu endilega best til þess fallnir. Hér er drepið á því að Þjóðskrá geti talað við umboðsmann barna til að leita álits á því hvort nafn geti orðið barni til ama eða ekki, en ég tel að umsagnir eigi eftir að berast um þetta atriði og ég held að við þurfum að ræða þetta betur í nefndinni.
Það er ekki gömul hefð að hægt sé að kenna sig við báða foreldra sína, Steinunnar- og Jónsson eða eitthvað slíkt, en mér finnst hún svo sem ágæt. Eins finnst mér í lagi að viðkomandi kenni sig við stjúpforeldri eða fósturforeldri eða eitthvað slíkt, ef rök eru færð fyrir því að viðkomandi hafi jafnvel lítil eða engin tengsl við blóðforeldra. Kannski er ég að misskilja það sem segir um 5. gr., varðandi 8. mgr., að í frumvarpinu felist það nýmæli að heimild til notkunar ættarnafna verði ekki bundin við þá einstaklinga sem bera eða báru ættarnafn í tíð gildandi laga, og að hægt verði að taka upp nýtt ættarnafn. En svo segir:
„Frumvarpið gerir þannig ráð fyrir að ættarnöfn sem skráð voru hér á landi fram að gildistöku laga nr. 37/1991 njóti verndar gagnvart því að vera tekin upp af ótengdum aðilum þar sem heimild til upptöku ættarnafna miðast við ný ættarnöfn.“
Mér finnst þetta aðeins stangast á. En kannski er það misskilningur sem þarf þá að vinna með í nefndinni. Mér finnst önnur setningin segja að það gildi ekki bara um niðja heldur alla, þ.e. þau ættarnöfn sem eru nú þegar í gildi. Mér finnst mjög jákvætt það sem segir í 10. gr., að eiginnöfn eigi að vera aðgengileg til upplýsinga og hægt sé að fletta upp í þeim án endurgjalds. Ég held að það sé afar mikilvægt.
Ég er eins og margir dálítið íhaldssöm í þessu og vil þó um leið auka frelsi fólks til þess að gefa barni sínu nafn. Hér var nafnið Blær nefnt og ég get upplýst að því var hafnað að ég fengi að gefa dóttur minni það nafn, en svo var úrskurðað nokkrum árum síðar að nota mætti nafnið á bæði kynin, eins og hér var rakið. Það er margt í þessu en mér finnst sannarlega að við þurfum að horfa dálítið til íslenskunnar í þessu og mér finnst dálítið langt gengið þarna. Það er margt sem ýtir undir það að við breytum lögunum, í ljósi þess að við erum fjölmenningarsamfélag og að frelsið á að vera eins mikið og mögulegt er. En einhvers staðar finnst mér þröskuldarnir þurfa að vera og þar finnst mér hið íslenska mál þurfa að njóta dálítils forgangs.
Virðulegi forseti. Ég hlakka til að fá þetta mál inn í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem ég er að taka sæti aftur.