151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

mannanöfn.

161. mál
[19:24]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að fagna framlagningu þessa frumvarps og hvetja hæstv. dómsmálaráðherra og hv. allsherjar- og menntamálanefnd, sem ég hef gengið til liðs við aftur, sem er gleðilegt því að ég hef saknað þeirrar nefndar, til dáða við að koma þessu máli hratt og örugglega í gegnum þingið. Ég held að þetta skipti gríðarlega miklu máli fyrir mjög stóran hóp fólks.

Það kom fram í fréttum að hæstv. ráðherra væri að safna sögum um áhrif núgildandi laga. Ég hef sjálf lesið sögur sem mér finnast áhrifamiklar og segja mjög sterka sögu um mikilvægi þess að hafa frelsi í nafngiftum á Íslandi. Mér finnst eiginlega ótrúlegt hvað við erum með sterka forræðishyggju og rosalegt vald yfir því hvað fólk kýs að kalla sig. Það er eiginlega svakalegt. Mér verður sérstaklega hugsað til sögu vinkonu minnar, Eydísar Ránar, og systur hennar, sem komu fram í viðtali í fyrra á Vísi og töluðu um að þær væru bara ekkert dætur neins. „Við erum bara ekki dætur“ var titillinn á frábæru viðtali við þær sem ég mæli með því að lesa vegna þess að þar kemur svo skýrt fram hversu neikvæð áhrif núgildandi lög geta haft á sjálfsmynd einstaklinga. Þarna eru tvær konur sem hafa þurft að ala sig upp nokkurn veginn sjálfar, telja sig ekki vera dætur foreldra sinna vegna áralangrar vanrækslu og vegna þess að þær hafa ekki haft neitt saman við þau að sælda í meira en áratug, líta ekki á þessa einstaklinga öðruvísi en einhverja ókunnuga manneskju úti á götu, ekki sem foreldra sína. En þeim stendur samkvæmt núgildandi löggjöf ekki til boða að breyta nafni sínu þannig að þær séu ekki kenndar við einhvern ókunnugan mann eða bara einhvern annan. Þær mega ekki taka upp kenninafn sem þeim finnst viðeigandi fyrir sig, sem tengja þær ekki við þennan ókunnuga mann, föður sinn. Þær eru því minntar á það á hverjum degi að löglega eru þær enn þá eignaðar þessum manni sem brást þeim, sem er ekki tengdur þeim lengur. Af hverju ættu þær að þurfa að þola það? Vegna þess að hv. þingmönnum hér í þessum sal finnst of langt gengið að einstaklingar, aðrir en þeir örfáu útvöldu sem eru með ættarnöfn, fái að velja sér ný ættarnöfn? Það eru bara sumir sem mega bera ættarnöfn á Íslandi, ekki aðrir. Það má bara alls ekki taka upp nein ný ættarnöfn. Ekki skil ég hvernig það getur verið rökstutt með tilliti til meðalhófs, með tilliti til þess hversu mikilvæg nafngift er og hvað maður er kallaður er fyrir sjálfsmynd einstaklinga. Þetta er eitthvað sem hefur verið viðurkennt af Mannréttindadómstóli Evrópu. Svona gríðarstór takmörkun eins og ríkir hjá okkur er ekki viðeigandi.

Ég vil nefna annað dæmi, dæmi góðrar vinkonu minnar, varaþingkonu Pírata og verðandi þingkonu Pírata í væntanlegri fjarveru hv. þm. Halldóru Mogensen, Söru Óskarsson, sem heitir öðru nafni Sara Elísa Þórðardóttir. Hún hefur alltaf kallað sig Söru Óskarsson vegna þess að hún bjó í Bretlandi og þar sögðu nafnahefðir annað en hér sem varð til þess að hún fór að nota kenninafn föður síns. Henni var tjáð það þegar hún tók fyrst sæti á Alþingi að hún gæti ekki borið það nafn sem hún hefur alltaf borið, það kenninafn, hér í þingsal. Hún þyrfti að vera Sara Elísa Þórðardóttir en ekki Sara Óskarsson eins og hún hefur alltaf kosið að kalla sig. Hvers vegna það verður að vera svoleiðis er mér líka hulin ráðgáta. Tölvan segir nei og þar með er það útrætt, þetta er bara ekki hægt, meira að segja þótt það sé alls ekki flókið fyrir tölvukerfi Alþingis að skrá inn Sara Óskarsson frekar en Sara Elísa Þórðardóttir. Einhverra hluta vegna sagði mannlega tölvan a.m.k. nei, út af því regluverki sem við búum við. Ég sé engar haldbærar ástæður fyrir því hvers vegna það ætti að vera svoleiðis. Ég sé það ekki. En það er tekið fyrir þetta í lögum um mannanöfn. Komi fólk aftur heim eftir að hafa búið erlendis þarf það að breyta nafninu sínu til baka, getur ekki haldið áfram að nota kenninafn foreldris eða maka. Það er beinlínis skylda að breyta því aftur, meira að segja þótt þér líki breytingin og finnist hún fín. Hafir þú hins vegar ekki feðrað barn má kenna það við afa sinn, en bara ef það er ófeðrað.

Að lokum vil ég tala um aðra dæmisögu sem mögulega snertir sjálfa mig. Nú er ég að velta fyrir mér hvað ég eigi að nefna barnið mitt sem von er á í febrúar. Faðir barnsins míns er pólskur ríkisborgari. Hann ber mjög fallegt ættarnafn sem ég vil gjarnan að barnið mitt beri. En ég fæ ekki séð af lestri mannanafnalaga að mér sé heimilt að gefa barninu mínu það ættarnafn. Ég sé ekki gert ráð fyrir því að það megi einungis bera það ættarnafn. Mér sýnist mér bera skylda til að gera það að millinafni barnsins míns þótt ég vilji að það sé ættarnafn barnsins míns. Ekki veit ég af hverju það ætti að takmarka mig í því en einhverra hluta vegna virðast mér settar skorður í að kenna barnið mitt við föður sinn á þann hátt sem börn eru kennd við föður sinn í heimalandi föðurins. Og vilji ég nefna barnið mitt pólsku nafni verð ég að hafa eitt íslenskt nafn með. Það verður að fylgja með í kaupbæti, annars má ég ekki nefna barnið pólsku nafni, samkvæmt núgildandi lögum. Nú vill svo skemmtilega til að ég vil nefna barnið með tveimur nöfnum, annað er pólskt og hitt íslenskt. En hvað ef ég vildi það bara ekki? Af hverju mætti ég það ekki?

Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna takmarka þurfi frelsi foreldra og barna til að bera nöfn sem þeim finnst við hæfi. Mér finnst hámark forræðishyggjunnar, afsakið, að standa í vegi fyrir því að fólk geti valið sér þau nöfn sem það telur henta sér eða barninu sínu. Nei, þú mátt ekki heita þetta. Ég má heita Kvaran og ég má ákveða að aðrir megi ekki bera ættarnöfn. Það eru engin rökstudd ákvörðun eða ástæða að baki þessu önnur en „mér finnst það“. Hér setjum við stopp við ættarnöfn, það mega ekki koma fleiri, og þið hin, óbreyttur pöpullinn, verðið bara að sætta ykkur við að vera kennd við föður og móður, sama hvað ykkur finnst um það. Sama þótt þið séuð ósátt við föður ykkar eða móður. Sama þótt þið hafið alltaf kennt ykkur við afa ykkar og viljið halda því áfram. Nei, ef þú ert ekki ófeðrað barn, þá máttu það ekki.

Þetta nær auðvitað engri átt. Þetta er einhver þjóðernisrembingur og kergja og forræðishyggja sem ég er enn þá að reyna að meðtaka. Það er kominn tími á að leggja þessa vitleysu niður.