störf þingsins.
Hæstv. forseti. Samstaða er ekki bara gott og fallegt hugtak. Samstaða getur verið býsna öflugt tæki, vænlegt til að auka líkur á árangri í verkefni sem við ákveðnar kringumstæður kallar á aðgerðir sem þarf að sameinast um að ná tökum á. Viðureignin við kórónuveiruna er sem betur fer fordæmalaus en engu að síður dæmi um slíkar aðstæður, kringumstæður sem beinlínis krefja okkur um og kalla á samstöðu. Nú á tímum, þegar við finnum fyrir vaxandi óþoli gagnvart sóttvarnaaðgerðum, umræðu um frelsi og vaxandi áhyggjum af efnahagslegum og félagslegum afleiðingum um óráðinn og óvissan tíma, er skiljanlegt að það hrikti í samstöðunni.
Þá er mikilvægt og kannski skynsamlegt að minna sig á hvað felst í samstöðu, hverju hún getur og á að skila og hvað er um að ræða hverju sinni, sóttvarnir, félagslegar og efnahagslegar aðgerðir, og leita í sameiginlegan skilning á því í hverju samstaðan ætti að felast. Verkfærið virkar best þegar við sameinumst, vissulega í kapphlaupi við tímann, um almennar skýrar reglur sem móta ákvörðunina sem að baki liggur. Þegar sú ákvörðun og leikreglurnar liggja fyrir þá sameinumst við öll um að ákvörðunin gangi eftir. Við eigum meira að segja slagorð yfir þetta. Verkfærið virkar þegar kemur að sóttvörnum. Það þekkjum við og þess vegna ættum við öll að sameinast um að aðgerðir á því sviði gangi eftir. Virðum það að við erum á misjöfnum stað í tilverunni, og því ekki endilega sammála um hversu langt og skynsamlegt sé að ganga þegar kemur að reglum. Þá reynir á þolgæði, þá reynir á umburðarlyndi, að virða leikreglur, að sameinast um að aðgerðir gangi eftir. Í því felst samstaðan.