151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Í gær fengum við í velferðarnefnd til okkar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til að fara yfir fyrstu skrefin í undirbúningi þess að framfylgja lögum um hlutdeildarlán. Í minnisblaði sem lagt var fyrir nefndina og nú hefur verið birt opinberlega kemur fram fjöldi nýrra íbúða sem seldar voru á fyrstu átta mánuðum ársins og uppfylltu skilyrði um verð og stærðarmörk en miðað var við gerð tillagna sem eru í reglugerðardrögum. Um er að ræða 220 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og 545 íbúðir um land allt. Það er eitthvað.

Það er mat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að þetta úrræði á húsnæðismarkaði komi til með að nýtast vel enda rími framangreindar tölur vel við greiningar sem stofnunin gerði þegar úrræðið var fyrst til skoðunar. Stofnunin telur ekki ástæðu til að ætla annað en að áætlanir um veitingu lána til kaupa á 400–500 íbúðum, sem falla undir þessi mörk um stærð og herbergjafjölda, geti gengið eftir. Lögin öðlast gildi 1. nóvember nk. og síðan frumvarpið var samþykkt á Alþingi hafa bæði einstaklingar og byggingarverktakar sýnt því mikinn áhuga.

Markmið með setningu laga um hlutdeildarlán er að auðvelda tekjulágum og öðru fólki að eignast sína fyrstu eign. Það er ekki síður mikilvægt markmið að hvetja byggingaraðila til að byggja hagkvæmt íbúðarhúsnæði um allt land sem hentar þessum hópum. Með hlutdeildarlánum er verið að skapa þennan hvata. Hugmyndin að hlutdeildarlánum er fengin frá Skotlandi og þar hafa þau gefið góða raun. Þau hafa leitt til aukins framboðs á hagkvæmu húsnæði, bæði í borgum og hinum dreifðu byggðum. Reynsla Skota sýnir að uppbygging hefur aukist í dreifbýlinu sem væri jákvæð þróun í rétta átt hér á landi. Það er töluvert dýrara að festa kaup á nýbyggingu úti á landi í stað eldra húsnæðis á sama stað enda ríkir markaðsbrestur á fasteignamarkaði úti á landi.

Forseti. Það er ótrúlegt að fylgjast með umræðum og fréttaflutningi þar sem reynt hefur verið að snúa út úr og að tala niður hlutdeildarlánin. Ég spyr mig hvað standi þar eiginlega að baki.