störf þingsins.
Herra forseti. Umræðan sem á sér stað um forgangsröðun verkefna Alþingis er áhugaverð. Ég get heils hugar tekið undir að forgangsröðun er mikilvæg og það er mikilvægt að við vöndum til verka. Undanfarið hefur okkur, bæði hér innan salar en ekki síður úti í samfélaginu, verið tíðrætt um neikvæðar afleiðingar þess að við göngum of langt í ákveðnum aðgerðum sem skerða frelsi einstaklinga til orða og athafna. Síðan hefur verið bent á að það mikilvægasta sé að vernda líf og heilsu okkar allra til að við fáum notið þessa sama frelsis.
Umræðan hér undanfarnar mínútur um hvað þingið eigi og eigi ekki að leggja áherslu á í þessum aðstæðum er svolítið af sama toga. Það er mjög mikilvægt að við leggjum áherslu á brýn verkefni. Við vitum öll að atvinnumissirinn og tekjusamdráttur heimila, einstaklinga og fyrirtækja er eitt brýnasta verkefni okkar núna. En það verður að vera hægt að gera kröfu um að við sinnum því verkefni án þess að láta það bitna á þeim fjölda fólks sem hefur lengi beðið eftir bótum, jaðarhópum sem lengi hafa beðið eftir úrlausn sinna mála. Sem betur fer eru nokkur slík mál á dagskrá hér í dag. Ég vara við því að við förum að nálgast þessi brýnu verkefni með „annaðhvort, eða“ hugmyndafræðinni. Við getum vel sinnt því verkefni okkar að tryggja réttlæti, tryggja sanngirni og tryggja jafnræði allra þegna samfélagsins eins og framast er unnt og unnið að þeim brýnu úrbótaverkefnum (Forseti hringir.) sem kórónuveirufaraldurinn færir okkur. Ég hlakka því til umræðunnar í dag (Forseti hringir.) og næstu daga um báða þessa (Forseti hringir.) stóru flokka.