151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:09]
Horfa

Frsm. forsætisn. (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga með breytingu á lögum um þingsköp Alþingis. Frumvarpið flyt ég fyrir hönd forsætisnefndar Alþingis. Nefndin stendur öll að flutningi frumvarpsins ásamt með áheyrnarfulltrúum Viðreisnar og Flokks fólksins. Frumvarp þetta er 80. mál þingsins á þskj. 81. Í tengslum við heildarendurskoðun laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla óskaði forsætisráðherra eftir því að kannaður yrði vilji þingsins til þess að þingskapalögum yrði breytt til samræmis við það sem til stendur í jafnréttislögum þannig að kynjahlutföll í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum Alþingis verði sem jöfnust.

Við umfjöllun forsætisnefndar um þetta mál var talið réttast að frumvarp til laga um breytingu á þingsköpum, breytingu á innri leikreglum þingsins, yrði lagt fram venju samkvæmt annaðhvort af formönnum þingflokka með forseta eða forsætisnefnd. Frumvörp hæstv. forsætisráðherra um annars vegar jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og hins vegar um stjórnsýslu jafnréttismála hafa nú verið lögð fram og eru reyndar næst á dagskrá þessa fundar ásamt fleiri tengdum málum. Því er frumvarp þetta, um breytingu á þingsköpum um hlutfall kvenna og karla í nefndum á vegum Alþingis og stjórnum, nefndum og ráðum sem Alþingi kýs til, nátengt og hluti af heildarendurskoðun jafnréttislöggjafarinnar.

Í 15. gr. jafnréttislaga er kveðið á um að við skipun nefnda á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Hefur verið litið svo á að þetta ákvæði jafnréttislaga eigi ekki við þegar fulltrúar í nefndir, ráð og stjórnir eru kosnir á Alþingi, m.a. með vísan til lögskýringargagna, en hins vegar hefur í gegnum tíðina nokkurri gagnrýni verið beint að Alþingi fyrir að gæta ekki nægilega vel að jafnréttissjónarmiðum, m.a. við kosningar í fastanefndir þingsins. Í ljósi umræðna og viðhorfa um jafnréttismál í samfélaginu á umliðnum árum þykir því rétt að leggja til breytingar á þingsköpum til að tryggja að hlutfall kvenna og karla í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum Alþingis sé sem jafnast, eins jafnt og aðstæður frekast leyfa.

Markmið frumvarpsins er að gera breytingar á þingsköpum svo skylt verði að líta til kynjasjónarmiða við kosningu varaforseta og skiptingu nefndarsæta og svo að sjálfsögðu við val eða kosningu fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem Alþingi annast um. Þar skal þess gætt að hlutfall kvenna og karla sé sem jafnast. Það verður þó alltaf að hafa í huga gagnvart þessum breytingum, sérstaklega hvað varðar skipan fastanefnda, forsætisnefnda og annarra innri nefnda þingsins, að þetta mun alltaf takmarkast við hlutfall kvenna og karla á Alþingi á hverjum tíma. Sömuleiðis geta kynjahlutföll innan einstakra þingflokka skapað hér hindranir sem erfitt er að yfirstíga og vegast þá á móti öðrum grundvallarreglum eins og þeim að þingflokkar fái hlutfallslegan þingstyrk sinn endurspeglaðan í nefndarsætum o.s.frv. Það er mikilvægt að menn hafi þetta tvöfalda eðli málsins í huga. Þarna er um að ræða innri starfsnefndir Alþingis, fastanefndir, forsætisnefnd, eftir atvikum sérnefndir eða þar sem Alþingi er bundið af þeim almennu hlutföllum sem alþingiskosningar skila hingað inn hverju sinni. Sömuleiðis geta skökk kynjahlutföll innan einstakra þingflokka, einkum hinna stærri, ef svo ber undir, skapað erfiðleika. Öðru máli gegnir þegar Alþingi hefur fengið það hlutverk með lögum að kjósa í stjórnir eða ráð utan þings og er þar af leiðandi að sjálfsögðu ekki bundið af einhverjum hlutföllum kjörinna fulltrúa í slíkri tilnefningu eða kosningu.

Frumvarp þetta felur í fyrsta lagi í sér að í 3. og 14. gr. þingskapa, þar sem kveðið er á um kosningu varaforseta og svo skipun fastanefnda þingsins, verði bætt fyrirmælum um að gæta skuli að hlutfalli kvenna og karla við kosningu í nefndir þannig að það sé eins jafnt og niðurstöður alþingiskosninga og kynjahlutföll innan þingflokka bjóða. Eins og áður kom fram í máli mínu er ljóst að Alþingi er bundið af niðurstöðum þingkosninga og hlutfall kvenna og karla innan þingflokka hafa þarna sömuleiðis áhrif. En það breytir að sjálfsögðu ekki því að mjög mikilvægt er að hugað sé að þessum mikilvægu sjónarmiðum eins og mögulega er kostur, að í þingsköpunum sé vísiregla í þessum efnum og menn leiti að bestu mögulegu niðurstöðu hverju sinni þegar valið er í fastanefndir eða kosið í forsætisnefnd í upphafi hvers kjörtímabils.

Herra forseti. Það er alveg ljóst að þessi vísiregla eða leiðbeinandi regla, ef svo má að orði komast, mun leggja talsverðar skyldur eða byrðar á herðar þingflokksformanna þegar þeir hefjast handa í upphafi hvers kjörtímabils við sitt mikilvæga verkefni að reyna að ná sameiginlegri heildarniðurstöðu um nefndakosningar.

Í öðru lagi er svo lögð til afdráttarlausari breyting á 82. gr. þingskapa um kosningu nefnda, ráða og stjórna á vegum Alþingis og bætt þar inn fyrirmælum um að við kosningu skuli þess gætt að hlutfall kvenna og karla sé sem jafnast og ekki minna en 40% af hvoru kyni þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Hér er mælt fyrir um mun fortakslausari reglu en á við um kosningu forsætisnefndar eða fastanefnda enda þingið ekki bundið af niðurstöðum alþingiskosninga. Í samræmi við tillögur forsætisráðherra að nýjum jafnréttislögum er tekið fram að ákvæði um jafnt hlutfall kvenna og karla komi að sjálfsögðu ekki í veg fyrir kosningu fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá, svo að gætt verði að stöðu þeirra einstaklinga, samanber einnig lög um kynrænt sjálfræði. Að þessu leyti er sömuleiðis verið að uppfæra ákvæði þingskapa í takt við nýsetta löggjöf á þessu sviði og er það vel.

Herra forseti. Ég hef nú lokið við að greina frá meginefni frumvarpsins en vil láta þess getið í lokin að venjan er að sjálfsögðu sú að frumvörp um breytingar á lögum um þingsköp Alþingis fari til umfjöllunar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. En þar sem allsherjar- og menntamálanefnd mun væntanlega, verði fallist á slíkar tillögur, fjalla um öll þau jafnréttismál sem þetta mál tengist, og þar á meðal þau tvö frumvörp frá hæstv. forsætisráðherra sem ég vísaði til áðan, þá legg ég til engu að síður að þessu sinni að frumvarpið gangi til allsherjar- og menntamálanefndar að lokinni þessari umræðu þannig að öll þessi frumvörp geti orðið samferða og verði unnin samhliða.

Ég hef upplýst formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um það mál og hygg að þar sé skilningur á þessum rökum. Ég bendi svo á í lokin að allsherjar- og menntamálanefnd getur að sjálfsögðu óskað álits stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á þessu máli þar sem því er vissulega ætlað að verða hluti af þingsköpunum, og færi vel á því að það yrði gert. En ég hygg að það sé betra verklag og vinnusparnaður í því fólginn að ein og sama nefndin hafi öll þessi stóru jafnréttismál til skoðanir og það er þá allsherjar- og menntamálanefnd.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu og legg til að að lokinni þessari umræðu gangi málið til allsherjar- og menntamálanefndar.