151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:19]
Horfa

Frsm. forsætisn. (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Ég held ég hafi nú kannski ekki beinlínis talað um skyldur, alla vega ekki í lagalegum skilningi. Það er alveg ljóst að þessi breyting leggur engar lagalegar skyldur sem slíkar á þingflokksformenn. Það sem ég var að vísa til er að nú er grunnreglan í þingsköpum, allt frá árinu 2011, í 13. gr. ef ég man rétt, í stóru greininni um kosningu í nefndir, að reynt er að ná fram heildarsamkomulagi milli stjórnar og stjórnarandstöðu og milli allra þingflokka og skipta trúnaðarstörfum og horfa til hlutfallslegs þingstyrks flokka. Það tekur bæði til mönnunar í nefndunum og það tekur eftir atvikum til formennsku í þeim sömuleiðis.

Þetta er gríðarlega flókið púsluspil sem allir þekkja, og það er þar sem kemur við sögu að segja má að með þessum breytingum, verði þær að lögum, komi viðbótarvísiregla inn í vinnu þingflokksformannanna sem þeir horfa þá til, leiðbeinandi regla um að eitt af því sem þingflokksformennirnir reyna að ná fram eru eins góð kynjahlutföll og aðstæður bjóða, eins og almennu hlutföllin og hlutföll innan einstakra þingflokka bjóða. Verkefni þingflokksformanna er flókið fyrir og það er það sem ég var að vísa til. Náist ekki samkomulag þá færist verkefnið yfirleitt í hendur tveggja blokka, meiri hluta og minni hluta, sem bjóða fram sinn listann hvor og við skyldum ætla að innan þeirra blokka yrði sömuleiðis áfram horft til þess að reyna að ná fram sem bestri kynjadreifingu.