151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langaði örstutt að fara yfir afleiðingar frumvarpsins, jákvæðar og tæknilegar. Það er mjög jákvætt að í rauninni séu sett fram markmið um að ná svona jöfnu hlutfalli. Ég vil byrja á að hafa það algerlega skýrt.

Hins vegar eru vandamál við uppröðun til staðar, eins og ég kom inn á í andsvari áðan. Sjálfstæðar einingar, þingflokkarnir, leggja til einhvern þingmann í ákveðna nefnd, algjörlega óháð því hvað allir hinir gera. Enginn þingflokkur spyr annan þingflokk um hvaða þingmann ætti að setja í viðkomandi nefnd, hvers kyns hann ætti að vera eða hvað það er. Það er einungis á forræði hvers þingflokks fyrir sig að leggja til þingmenn til nefndarsetu í hverri einustu nefnd. Afleiðingin af því er að já, það getur komið fyrir að það séu bara konur eða bara karlar í einhverri nefnd. Hvað þetta frumvarp varðar á að spyrja spurningarinnar: Bíddu, er ekki eitthvað hægt að gera við þessu?

Frumvarpið nær í rauninni ekki lengra. Praktískt séð getur enginn flokkur á þingi skipað öðrum flokki að færa neinn á milli nefnda, sagt: Þú átt að fara með þennan nefndarmann úr þessari nefnd og setja einhvern annan í staðinn. Það er bara fræðilega ómögulegt. Þá værum við að tala um mjög varhugaverða beitingu á valdi. Ég vil að fólk geri sér grein fyrir því hvert takmarkið er, hver girðing laganna er og hvar hún er. Hvar endar sá skilningur og sú lagalega skylda sem lögin kveða á um? Hún endar alltaf á því að hver einn og einasti þingflokkur getur sagt: Þetta er þingmaðurinn sem er að fara í þessa nefnd og það er enginn sem getur breytt því. Það er bara þannig.

Tvímælalaust er markmiðið, og umræðan snýst um það, að reyna að ná fram niðurstöðu. En þegar allt kemur til alls þá er praktískt séð bara einn aðili í rauninni sem getur sagt eitthvað um það hver á að laga kynjahlutfall í nefnd. Það er aldrei þannig að meiri hluti þings eða meiri hluti í nefnd eða hver sem er geti ákveðið að taka einn í burtu til að setja einhvern annan í staðinn til að jafna kynjahlutföllin eða eitthvað þvílíkt. Það er enginn sem getur sagt að þessi flokkur en ekki hinn eigi að laga kynjahlutfallið. Þetta er bara praktískt atriði varðandi ákveðið valdajafnvægi á þinginu og sjálfstætt umboð hvers þingmanns og þingflokks.

Annað sem ég myndi vilja bæta við inn í umræðuna um málið er að það er kannski nær því að hægt væri að setja ákveðna lagalega skyldu á þingflokka sem eru með fleiri en einn þingmann í hverri nefnd. Þar er frekar hægt að segja að það sé einhvers konar ríkari skylda til að halda jöfnum kynjahlutföllum. Í fjárlaganefnd var t.d. Sjálfstæðisflokkurinn með þrjá karla, þar til tilkynnt var um breytingar í dag. Gagnvart þessum lögum er það gríðarlega áhugaverð staðreynd. Ef eitthvað er væri alla vega hægt að fara þar í aðeins ríkari lagatúlkun hvað varðar þessi markmið og hlutföll. En varðandi sjálfstæði hvers þingflokks og hvers þingmanns gagnvart nefndarsæti sínu verðum við að hafa það alveg á hreinu að já, við viljum ná þessum markmiðum. En nei, það er ekki hægt að þvinga þau fram.