Þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir orð hans um þetta frumvarp. Ég hygg að við séum býsna sammála um markmiðin, og veit það reyndar. Nú eru þingflokksformenn að fást við ýmis yfirgripsmikil mál meðan á þingstörfum stendur og mörg hver krefjast mikilla samningaviðræðna, og tekst alla jafna nokkuð vel að leysa úr þeim. Mér finnst nokkuð skýrt — það er alveg ljóst og kom svo sem fram í máli framsögumanns, hæstv. forseta Steingríms J. Sigfússonar — að þetta kveði ekki á um lagalega skyldu til að beita þessu, til að ná þessum markmiðum. Spurningin er því þessi: Telur hv. þingmaður að þau tilmæli sem felast í þessu plaggi auki líkurnar á því að við náum settum markmiðum um kynjajafnrétti, eins langt og það nær? Þetta er nokkuð sem við höfum haft á listanum yfir verkefni þegar raðað er í nefndir. Við höfum reynt að sinna því eins og kostur er. Nú eru komin enn skýrari tilmæli og skýrari yfirlýsing um vilja Alþingis. Er þetta ekki bara eitt og rökrétt skref í þá átt og enn frekari líkur á að við náum þessu markmiði? Eða telur hv. þingmaður að það ríki einhver óljós skilningur á því hvert hlutverkið er hérna? Hefur hv. þingmaður áhyggjur af því að verið sé að leggja þingflokksformönnum einhverjar skyldur á herðar sem þeir geta ekki staðið undir?