151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta eru mjög góðar spurningar, ég þakka fyrir þær. Í fyrsta lagi eru þetta lög og í þessum lögum segir að þess skuli gætt að hlutfallið sé jafnt. Þó að við séum að fjalla um það hér hvað þetta þýði í raun — og ég slái ég þann varnagla að þetta geti ekki þýtt að hægt sé að þvinga þingflokk, einn fremur en annan, til að hafa mannaskipti í nefndum, til að laga það hlutfall sem hér er talað um — er þetta samt orðið að lögum. Það sem vantar upp á til að hægt sé að framfylgja því er einhvers konar ferli sem það ætti að fara í. En það er ekkert slíkt þannig að ég held að sjálfstæði þingflokka og þingmanna, hvað það varðar, sé alveg varið. Það er hins vegar gott að hafa þetta skýrt. Þetta var óskýrt, þetta var svona óskrifuð regla, ef þannig má orða það, ein af þeim. Mér finnst gott að þetta sé orðið skýrara, það lifir betur á milli þinga þegar verið er að vinna með svona hluti. Þetta er alla vega ekki neikvætt. Ef fólk vill almennt séð fara eftir því sem þingið samþykkir, tala nú ekki um þjóðaratkvæðagreiðslur, er betra að hafa það í lögum þó að praktíski ómöguleikinn sé til staðar hvað varðar sjálfstætt ákvörðunarvald hvers þingflokks fyrir sig. Praktíski ómöguleikinn er enn til staðar en að hafa það í lögum gerir að verkum að það er líklegra að þetta skili árangri.