Þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Ég hef alveg örugglega bæði minna vit og minni áhuga á þessu út frá tölfræðilegum þáttum, en ég tel mig skilja hvað hv. þm. Björn Leví Gunnarsson er að fara með þessu. Hann er í raun og veru að segja: Hér er sett fram vísiregla eða leiðbeiningarregla eða þess háttar sem mun aldrei verða hægt að framfylgja 100%. Ég skil hann þannig og ég get verið alveg sammála því. Ég vildi bara taka það fram að þetta nær ekkert lengra en það að leitast er við að uppfylla þessi markmið miðað við hvernig kynjahlutföllin innan þingflokka eru og miðað við hvernig þingkosningar fara. Það er í sjálfu sér allt ágætt um það að segja. Það er auðvitað í samræmi við það sem þingflokksformenn hafa reynt að gera þegar þeir hafa verið að stilla upp núna undanfarin ár a.m.k., eða alla vega frá því að ég fór að fylgjast með því.
Síðan (Forseti hringir.) er það önnur umræða sem við getum velt fyrir okkur, hvort þingsköp eigi fyrst og fremst að vera reglur (Forseti hringir.) sem eiga að vera „absalút“, afdráttarlausar til eða frá, (Forseti hringir.) eða hvort þær eigi að fela í sér markmiðssetningar.
(Forseti (GBr): Forseti biður hv. þingmenn um að virða hin knöppu tímamörk.)