151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:46]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður svaraði sér eiginlega sjálfur og hefur þá kannski misst af einhverju í samtölum okkar tvíburanna, hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar og mín. Við vorum einmitt að fjalla um að þarna væri í raun og veru verið að færa inn í þingsköp ákveðna vísireglu eða leiðbeiningarreglu sem hefur verið framfylgt innan þingsins eftir því sem kostur hefur verið. Með þeim fyrirvara að taka þurfi tillit til niðurstöðu alþingiskosninga og kynjahlutfalla innan þingflokka er málið auðvitað gert framkvæmanlegt. Ef þetta væri absalút regla með sama hætti og varðar t.d. stjórnsýslunefndir sem skipaðir eru af ráðherrum þá gætum við lent í ómöguleika, t.d. gæti þingflokkur skipaður eingöngu konum eða eingöngu körlum lent í því að mega ekki fá fulltrúa í nefnd undir einhverjum kringumstæðum. Með 1. og 2. gr. er tekið tillit til þess.

Hins vegar er það síðan önnur umræða sem við hv. þingmaður getum ábyggilega tekið við tækifæri sem er miklu almennari og víðtækari og snýst um það hvort yfir höfuð eigi að hafa kynjakvóta eða ekki. Og þar er ég ekki viss um að við hv. þingmaður séum sammála.