151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:48]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Bestu andsvörin fást alltaf þegar maður spyr einfaldlega og svarar sjálfur og þarf ekki að trufla samtalið með einhverjum öðrum sjónarmiðum.

Hv. þingmaður hitti kannski naglann á höfuðið og dró fram í raun það sem ég velti fyrir mér hvort býr undir orðum hans um þessi mál. Ég sé ekki að áhyggjur hv. þingmanns séu á rökum reistar. Vegna þess hvernig 1. og 2. gr eru orðaðar hér þá sé ég ekki að sú staða sem hv. þingmaður talar um geti komið upp. Þess vegna velti ég því fyrir mér, getur verið að það sé afstaða hv. þingmanns til kynjakvóta almennt sem ræður orðum hans? Er hann þá ósammála jafnréttislögum almennt — ég leyfi mér að taka umræðuna þangað fyrst hv. þingmaður fór að ræða þetta á almennum nótum — um að leitast sé við að halda sem mestu jafnvægi á milli kynjanna, reyndar aðeins tveggja?