151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:50]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar aðeins til að leggja orð í belg því að satt best að segja skil ég ekki alveg áhyggjurnar miðað við orðalag ákvæðanna hér. Þarna virðist vera fullt svigrúm til þess veruleika, eða þeirrar stöðu ef kynjahlutföll inn á þingflokka bjóða einfaldlega ekki upp á fyllilegt jafnræði hér. En hins vegar finnst mér líka umhugsunarvert ef við horfum á pólitíska þróun, hvað gerðist hérna t.d. í kosningunum 2017 þegar hlutfall kvenna hrapaði mjög dramatískt niður á þingi, ég held að það hafi farið úr tæpum 48% niður í 38%, að við séum þá á svipuðum tíma að lýsa yfir efasemdum um að geta stigið skref sem þessi. Ættum við ekki í raun og veru að snúa þessu við, að þingið slái þann tón og varði þannig veginn fyrir stjórnmálaflokkana? Því að það er auðvitað ekki tilviljun að hlutfall kvenna á þingi hafi hrunið á þessum tíma vegna þess að hér eru ákveðnir flokkar sem ganga einfaldlega ekki í takt við samtímann varðandi hlutföll kynja.

Að því sögðu vildi ég bara ítreka þetta: Þegar maður skoðar ákvæðin þá eru þau mjög mildilega orðuð. Þau ramma inn ákveðið markmið, ákveðið leiðarstef og veita ákveðið svigrúm. En ég held að Alþingi sé ekki í þeirri stöðu að geta sagt samfélaginu hvernig það á haga sér þegar kemur að jafnrétti kynjanna ef það treystir sér ekki sjálft til að fara eftir þessu.