þingsköp Alþingis.
Hæstv. forseti. Ég tek fram, eins og ég gerði í andsvörum mínum við hv. þm. Kolbein Óttarsson Proppé, að ég er ekki með orðum mínum að lýsa andstöðu við 1. og 2. gr. frumvarpsins. Ég vek bara athygli á því að eins og ákvæðin eru orðuð er tekið mið af þeim veruleika að ekki er hægt að framfylgja ásetningi eða áformum um tiltekin hlutföll kynja í nefndum án tillits til niðurstaðna alþingiskosninga og þess hvernig þingflokkar eru skipaðir. Það gengur einfaldlega ekki upp. Svo ég beini athyglinni að einhverjum öðrum þingflokki en mínum, þá væri ekki hægt að knýja t.d. Miðflokkinn, sem hefur bara eina konu í sínum þingflokki, til að hafa alls staðar eina konu þar sem Miðflokkurinn hefur tvo fulltrúa. Það er ekki hægt, það segir sig sjálft.
Í mínu tilviki er staðan lítið einfaldari vegna þess hver niðurstaða alþingiskosninga var. Síðan er það hvernig flokkar velja á lista þeirra mál. Það er mál kjósenda hvort þeir kjósa viðkomandi flokk eða ekki. Ef flokkar fara t.d. þá leið, eins og löngum hefur verið gert í mínum flokki, að kosið er með lýðræðislegum hætti í sæti á listunum er erfitt að stýra því fyrir fram hvernig kynjahlutföll raðast. Það er einfaldlega bara afl atkvæða sem ræður niðurstöðu um það. Það gerir það að verkum að staða okkar þegar kemur að þingkjörnum nefndum kann að vera töluvert ólík því sem gerist hjá stjórnsýslunefndum, svo dæmi sé tekið, (Forseti hringir.) þar sem um er að ræða einn skipunaraðila sem hefur önnur tök á málunum en við hér í þinginu.