þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Mér heyrist nú að við séum í grundvallaratriðum ekki ósammála. Sá þingmaður er hér stendur áttar sig á því að hv. þm. Birgir Ármannsson er ekki beinlínis andsnúinn þessu. Mitt sjónarmið er kannski frekar það að ég sé ekki að það séu nein stórkostleg hættumerki á ferðinni. Ákvæðið er opið í orðalagi sínu og mér þætti mjög miður ef Alþingi þorir ekki að standa með því markmiði að það sé almennt leiðarstef þar sem hægt er að koma því við að kynjahlutfall sé sem jafnast. Það eru þau skilaboð sem skína í gegn. Vitaskuld koma upp þær aðstæður að ekki er hægt að verða við því. En ég held að við eigum ekki fyrir fram að nálgast þetta markmið þannig að því verði ekki náð. Auðvitað hlýtur það að vera markmiðið að hlutfallið sé sem jafnast. Og í því samhengi langar mig líka til að segja, af því að stundum er talað um málefnaleg sjónarmið við ráðningar — eins og það geti ekki verið málefnalegt sjónarmið að líta til kynferðis.