breyting á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði.
Frú forseti. Þá er komið að frumvarpi númer tvö sem tengist lögum um kynrænt sjálfræði, fjallar um breytta kynskráningu. Þetta frumvarp var unnið í samstarfi forsætisráðuneytisins og starfshóps sem var skipaður samkvæmt áðurnefndu, títtnefndu jafnvel, bráðabirgðaákvæði II í lögum um kynrænt sjálfræði. Með ákvæðinu var starfshópnum meðal annars falið að fjalla um og gera tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar væru til að tryggja réttindi trans fólks og intersex fólks.
Í þessum hópi sátu fulltrúar dómsmálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Formaður hópsins var skipaður af forsætisráðherra og sérfræðingur forsætisráðuneytisins var starfsmaður hópsins. Starfshópurinn var skipaður með það fyrir augum að tryggja gott samráð um umfangsmestu lagabreytingarnar og hafa samráð við önnur ráðuneyti eftir því sem við átti, einnig þau sem ekki áttu sérstaka fulltrúa í þessum hópi, svo sem mennta- og menningarmálaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Hópurinn átti einnig fundi með fulltrúum frá Samtökunum ´78 og Trans Íslandi. Frumvarpið byggist á tillögum starfshópsins sem birtar voru í skýrslu sem hann skilaði til mín í september síðastliðinn og birt var á vef forsætisráðuneytisins.
Hæstv. forseti. Þær breytingar sem nauðsynlegt er að gera á lögum vegna samþykktar laga um kynrænt sjálfræði falla að meginstefnu til í tvo flokka. Annars vegar er um að ræða breytingar sem til koma vegna þess að lög um kynrænt sjálfræði heimila einstaklingum að hafa hlutlausa kynskráningu. Heimildin gerir það að verkum að í lagaákvæðum sem fela í sér kyngreiningu (karl, kona) verður jafnframt að gera ráð fyrir þeim hópi sem kýs að hafa hlutlausa kynskráningu. Hins vegar þarf að huga að breytingum á ýmsum lögum til að tryggja foreldrastöðu trans fólks og einstaklinga með hlutlausa kynskráningu. Íslensk lög hafa ekki gert það að skilyrði fyrir breytingu trans fólks á kynskráningu sinni að viðkomandi gangist undir ófrjósemisaðgerð. Því er það vel hugsanlegt að trans maður gangi með og ali barn og að trans kona geti barn. Þessir möguleikar voru fyrir hendi fyrir setningu laga um kynrænt sjálfræði en ekki hafa verið gerðar nauðsynlegar breytingar á lögum til að samræma þau þessum veruleika.
Fjöldamörg íslensk lög hafa að geyma ákvæði sem fela í sér kyngreiningu. Ekki er talin brýn þörf á að breyta öllum þessum ákvæðum enda má gera ráð fyrir að sumum þeirra a.m.k. yrði beitt með rýmkandi skýringu, eða eftir atvikum lögjöfnun, um einstaklinga með hlutlausa kynskráningu. Við gerð frumvarpsins hefur einkum verið lögð áhersla á ákvæði sem kveða á um einstaklingsbundin réttindi og ákvæði sem lúta að jafnri stöðu kynja.
Tvær meginaðferðir koma til greina við að innleiða þær lagabreytingar sem nauðsynlegar eru og þetta er að sjálfsögðu matsatriði. Annars vegar er hægt að breyta lögum á þann veg að þau verði með öllu kynhlutlaus. Hins vegar er hægt að setja sérákvæði um einstaklinga sem breytt hafa kynskráningu sinni. Í frumvarpi þessu eru báðar aðferðir notaðar og fer það eftir efni ákvæðanna og uppbyggingu og stíl þeirra laga sem um ræðir hvor þeirra þykir heppilegri í hverju tilviki.
Virðulegi forseti. Ég vil nefna það að dómsmálaráðherra mun leggja fram frumvarp til laga um breytingu á barnalögum sem hefur að geyma tillögur að breytingum sem nauðsynlegt er að gera til að tryggja foreldrastöðu trans fólks og fólks með hlutlausa kynskráningu. Þær breytingar eru umfangsmiklar og eru því lagðar fram í sérstöku frumvarpi, sem von er á til þingsins í þessum mánuði. Ein af þeim breytingum sem þar eru lagðar til er að bætt verði við lögin ákvæði sem mælir fyrir um að ákvæði annarra laga sem fjalla um móður, þungaða konu, konu sem nýlega hefur alið barn og konu með barn á brjósti taki einnig til karlmanns og einstaklings með hlutlausa kynskráningu í sömu stöðu. Sambærilegri tilvísun til ákvæða sem fjalla um föður verði jafnframt bætt við þar sem kveðið verði á um að þau eigi einnig við um einstakling sem hefur breytt kynskráningu sinni og telst foreldri barns, annað en það sem ól það. Með þessu móti er hægt að draga mjög úr umfangi lagabreytinga. Sem dæmi verður óþarft að gera sérstakar breytingar á ákvæðum af þessum toga í barnaverndarlögum, lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir, lögum um þungunarrof, lögum um almannatryggingar, lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sjúkratryggingar.
Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu varða lagaákvæði af ýmsum toga. Sem dæmi má í fyrsta lagi nefna ákvæði sem lúta að réttindum í tengslum við meðgöngu og fæðingu barns, einkum fjárhagslega aðstoð við foreldra. Í öðru lagi má nefna löggjöf um tæknifrjóvgun og í þriðja lagi ákvæði sem lúta að kynjajafnrétti. Í fjórða lagi hefur frumvarpið að geyma tillögur að breytingum á tilteknum ákvæðum almennra hegningarlaga. Hér skulu nefndir helstu efnisflokkar.
Í frumvarpinu er lögð til breyting á tilteknu ákvæði laga um félagslega aðstoð sem fjallar um mæðralaun og feðralaun. Gert er ráð fyrir að bætt verði við greinina nýrri málsgrein sem mælir fyrir um að ákvæði greinarinnar eigi að breyttu breytanda einnig við um bætur til foreldra sem hafa hlutlausa kynskráningu.
Í öðru lagi eru það lög um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Breytingar sem lagðar eru til á tæknifrjóvgunarlögum lúta fyrst og fremst að því að víkka gildissvið laganna þannig að þau nái jafnframt til einstaklinga sem breytt hafa kynskráningu sinni, hvort sem um er að ræða þann sem gengst undir tæknifrjóvgun eða maka hans. Jafnframt er lagt til viðbótarákvæði við tiltekna grein laganna sem mælir fyrir um að pari í hjúskap eða skráðri sambúð sé heimilt að gefa hvort öðru kynfrumur. Þess munu vera dæmi hér á landi að konur í hjúskap eða skráðri sambúð hafi gefið hvor annarri eggfrumur við tæknifrjóvgun, þ.e. önnur konan hefur gengið með barn sem getið er við tæknifrjóvgun þar sem eggfruma eiginkonu hennar hefur verið frjóvguð. Ástæða er til að lögfesta þessa heimild með skýrum hætti. Hún mun einnig nýtast trans körlum sem gert hafa ráðstafanir til að geyma eggfrumur áður en þeir gangast undir kynleiðréttingaraðgerð sem skerðir frjósemi þeirra og hafa þá möguleika á að gefa þær maka sínum sem gengur með og elur barnið.
Í þriðja lagi eru það lagaákvæði sem lúta að jafnrétti kynjanna sem við höfum einmitt verið að ræða hér fyrr í dag. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um það en vil þó segja að þar hafa verið samræmdar tillögur að breytingum á ákvæðum sem varða jafnrétti við þessi frumvörp og vil ítreka það sem ég benti á hér áðan að ýmis ákvæði laganna sem fjalla um kynjajafnrétti miða að því að jafna möguleika og áhrif karla og kvenna í samfélaginu og þátttökumöguleika þeirra og byggjast þá á því að fjöldi hvors kyns á hverjum tíma sé svipaður. Ég get nefnt sem dæmi ákvæði sem við vorum að ræða hér áðan um lágmarkshlutfall karla og kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum. Sú stefna er sem sagt mörkuð að halda slíkum ákvæðum óbreyttum en leitast við að tryggja stöðu einstaklinga með hlutlausa kynskráningu með sérstökum ákvæðum.
Þá vil ég einnig nefna ákvæði laga um fæðingar- og foreldraorlof þar sem segir að lögunum sé ætlað að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Lagt er til að í stað orðanna „bæði konum og körlum“ komi: foreldrum. Ég vil í þessu samhengi líka nefna ákvæði laga um grunnskóla og ákvæði laga um fjölmiðla.
Ég nefndi hegningarlögin hér áðan en þær breytingar á almennum hegningarlögum sem lagðar eru til varða einkum tvo kafla laganna. Þetta eru annars vegar XXI. kafli um sifskaparbrot, þ.e. ákvæðin um fjölkvæni og fjölveri og um ranga upplýsingagjöf um faðerni eða móðerni barns, og hins vegar XXIII. kafli um manndráp og líkamsmeiðingar, einkum ákvæði um brot móður gagnvart barni sem hún elur eða fóstri sem hún gengur með og ákvæði um limlestingar á kynfærum kvenna. Í mörgum tilvikum má gera ráð fyrir að hægt væri að beita 1. mgr. 1. gr. almennra hegningarlaga en vegna kröfu refsiréttar um skýrleika refsiheimilda þykir rétt að breyta ákvæðum laganna og þá sérstaklega ákvæðum sem fjalla um móður og þungaða konu.
Í flestum tilvikum er orðalagi ákvæðanna breytt þannig að þau verða kynhlutlaus en í einstaka tilvikum er lagt til að sérstöku ákvæði verði bætt við þær greinar sem um ræðir.
Í XXIII. kafla almennra hegningarlaga eru ákvæði sem fjalla um það ef móðir deyðir barn sitt í fæðingu, skilur það eftir bjargarvana eftir fæðingu eða deyðir fóstur sitt. Breytingar á þessum ákvæðum þurfa annars vegar að taka mið af breyttri skilgreiningu hugtaksins móðir í fyrrnefndu frumvarpi til laga um breytingu á barnalögum, sem ég nefndi áðan, og hins vegar af því að einstaklingar með karlkyns eða hlutlausa kynskráningu geta alið barn og gerst sekir um þau brot sem ákvæðin fjalla um. Hér verður að telja eðlilegast að gera ákvæðin kynhlutlaus. Lagt er til að orðið manneskja sé notað um mögulegan geranda. Orðið manneskja — hér kemur töluverður málfræðikafli í þessari ágætu ræðu — er ekki kyngreinandi og stofn þess vísar til tegundarinnar maður. Orðið er kvenkynsorð og á það ágætlega við því áfram verður þá hægt að nota fornafnið hún í ákvæðunum. Hér spöruðu lögfræðingarnir sér nokkur skref.
Frú forseti. Það er töluverður kynusli í ávarpsorðum mínum um forseta og ég biðst velvirðingar á því. Áhrif frumvarpsins felast einkum í því að með lögum verða tryggð ýmis lagaleg réttindi fólks með kynhlutlausa skráningu og trans fólks, m.a. að því er varðar barneignir. Áhrif frumvarpsins felast því einkum í réttarbótum fyrir þennan hóp fólks þar sem kynskráning hópsins er viðurkennd að fullu og jafnræðis gætt að lögum. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð.
Ég vænti þess, af því að þetta er auðvitað töluverð breyting, að hv. allsherjar- og menntamálanefnd fari ítarlega yfir þetta mál og einhver orðanotkun kann að vekja spurningar. Því meiri umræða sem fer fram um frumvarpið, þeim mun betra. Að lokinni 1. umr. legg ég til að málinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar sem fari vel yfir þessi atriði.