utanríkisþjónusta Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans við þetta frumvarp sem er nú flutt í annað sinn. Nú var það þannig að nokkuð hörð gagnrýni kom, má segja, frá starfsmönnum utanríkisráðuneytisins, a.m.k. einhverjum, gagnvart frumvarpinu og umsagnir í þá veru frá sumum starfsmönnum. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort komið hafi verið til móts við þær athugasemdir. Það er svolítið sérstakt að starfsmenn ráðuneytisins sjái sig tilneydda til að verja utanríkisþjónustuna, eins og hún er í dag. Það felst í raun og veru í umsögnum þeirra sem bárust um frumvarpið þegar það var flutt í fyrsta sinn og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann þekki dæmi þess að starfsmenn hafi stigið fram með þessum hætti eins og þeir gerðu. Ef hæstv. ráðherra gæti farið aðeins yfir þessa tvo þætti.