151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

leigubifreiðaakstur.

10. mál
[18:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna. Mikilvægt er að vel takist til, sagði hæstv. ráðherra. Ég hef miklar áhyggjur af því að nú eigi að afnema fjöldatakmarkanir í þessari grein. Rökin fyrir því að takmarka fjölda atvinnuleyfa eiga enn vel við að mínum dómi og við sjáum að sambærilegum aðferðum er beitt í öðrum greinum til að tryggja hag þeirra sem þar starfa og má þar t.d. nefna kvótakerfi í landbúnaði og sjávarútvegi. Kvótar og takmarkanir hafa ákveðinn tilgang. Þeir eru verkfæri sem er nauðsynlegt til að tryggja grundvöll ákveðins reksturs og án takmörkunar má telja víst að fjöldi leigubifreiða tvöfaldist á skömmum tíma. Á Íslandi búa ekki milljónir manna og hér eru ekki þúsundir leigubifreiða eins og í sumum stórborgum. Markaðurinn hér eru mun viðkvæmari en í löndum í kringum okkur og við sjáum t.d. að nú er afar erfitt hjá leigubílstjórum vegna Covid-19. Það er sjálfsagt að skoða hvort fjölga megi leyfum eitthvað, ég er ekki að segja það, en það verður að fara mjög varlega að mínum dómi í það að leggja niður hámarksfjölda atvinnuleyfa. Ég tel það ákveðið ábyrgðarleysi og áhyggjuefni. Mig langar að heyra frá hæstv. ráðherra hvort það hafi verið farið vandlega yfir það hver reynsla annarra þjóða er af þessu, t.d. í Svíþjóð. Svíar hafa mjög slæma reynslu af því að hleypa öllum inn í greinina þegar þeir afnámu takmarkanir á leyfum fyrir allmörgum árum. T.d. hefur verið horft á þessi dæmi og hvernig hafi verið farið með (Forseti hringir.) umsögn Bifreiðafélagsins Frama. (Forseti hringir.) Ég spyr hvort ekki hafi verið hlustað á sjónarmið félagsmanna þess sem þekkja mjög vel (Forseti hringir.) til í þessari grein þegar (Forseti hringir.) sá mikilvægi þáttur þessa máls var ræddur.