151. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2020.

leigubifreiðaakstur.

10. mál
[18:55]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Við fjöllum hér um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur sem, eins og hæstv. ráðherra gat um, var til umfjöllunar á 150. þingi. Frumvarpinu var vísað til umhverfis- og samgöngunefndar og hlaut þar nokkra umfjöllun. Þetta er auðvitað rótgróin starfsgrein og mikilvæg þjónusta sem verið er að veita í almannaþágu og eðlilegt að hún taki breytingum í takt við tímana. Tímarnir breytast dálítið hratt, bæði ferðavenjur, atvinnuhættir, tómstundir og lífshættir almennings.

Mig langaði að drepa á eitt eða tvö atriði í frumvarpinu, þar sem eru 24 greinar. Það vekur spurningar, annaðhvort eru heimildir til ráðherra að setja reglugerðir eða að ráðherra skal setja reglugerðir. Þær eru, að ég held, 16 eða 17 talsins með þessum lögum þar sem ráðherra er heimilt eða hann skal setja reglugerð. Hvað segir það okkur um lögin? Mér finnst þetta vera heldur laust í reipunum.

Í 6. gr. segir um rekstrarleyfin að hver stöð skuli hafa starfsstöð. Það er ekki skilgreint nánar. Þetta er ekki leigubifreiðastöð, getið er um það í 12. gr., og að menn skuli a.m.k. varðveita þar öll grunnviðskiptaskjöl er varða reksturinn, þau skuli geymd og vera aðgengileg. Erum við að tala bara um eina sæmilega tölvu og eitt pósthólf ef út í það færi? Það er svo sem ekki verið að gera kröfu um annan viðbúnað hér á landi.