leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Eins og ég nefndi í framsögu minni er hvergi minnst á farveitur í þessu frumvarpi enda er ekki verið að fjalla um þær. Hins vegar er verið að fjalla um almenn rekstrarskilyrði. Það útilokar ekki farveitur, standist þær kröfur laganna að öðru leyti. Varðandi umræðuna um gjaldmælaskyldu eða afnám hennar, þó að ætlast sé til að þeir sem selja leigu eða bjóða fram þjónustu sem tekur mið af aukinni vegalengd eða tíma þurfi gjaldmæli á það. En séu menn búnir að semja um verð, t.d. vegna útsýnisferða, skoðunarferða eða tiltekinnar leiðar sem menn eru búnir að semja um fyrir fram og geta með nútímatækni sýnt fram á að kominn sé bindandi samningur um það, þá er það líka heimilt samkvæmt lögunum. Það gildir jafnt um það gráa svæði sem er í dag varðandi eðalvagna og slíka hluti, verið er að reyna að takast á við að skýra þessi gráu svæði þannig að menn geti keppt á eðlilegum grunni, og ekki síst leigubifreiðastjórarnir sem bera oft skarðan hlut frá borði í dag.