höfundalög.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að nefna það sem ég hef stundum nefnt hér áður. Ég kann að búa til texta. Ég kann að búa til hugbúnað. Ég kann að búa til tónlist. Ég er alinn upp af kvikmyndagerðarmanni og hljóðmanni. Ég þykist stundum hafa alist upp í hljóðveri, sem er reyndar ekki alveg satt, en ég var mjög mikið í hljóðverum og kvikmyndaverum og þess háttar. Ég kann ekkert og hef voða lítinn áhuga á nokkrum hlut sem ekki varðar höfundarétt á einhvern hátt. Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að þegar kemur að höfundarétti er ákveðin tilhneiging innan þeirra hagsmunasamtaka sem verja réttindi rétthafa, að láta eins og öll gagnrýni á höfundarétt sé á einhvern hátt annars vegar tillitsleysi í garð þeirra sem búa til hugverk og hins vegar skilningsleysi á höfundarétti. Hið síðarnefnda er reyndar oftast nær rétt vegna þess að ólíkt því sem við lærum um þjófnað og lygi í æsku, í venjulegu uppeldi, þá lærum við ekki mikið um sæmdarrétt og þess háttar eða hvað þykja eðlilegar greiðslur, hvers vegna sé ólöglegt að afrita efni sem þegar er til. Af hverju ekki er hægt að afrita það og gefa öllum heiminum, eins og Jesús myndi gefa brauð? myndi barnið spyrja, og þannig spurði reyndar þetta barn hér.
Höfundaréttur er í eðli sínu fyrirbæri sem hannað er til þess að búa til markaðsaðstæður út frá ákveðnum viðskiptamódelum fyrir hugverk til að blómstra. Það er kenningin. Það er pælingin á bak við hugverkarétt. Með því að beita höfundarétti og takmarka getu fólks til að fjölfalda hugverk búum við í raun til skort. Úr skortinum kemur það að fólk er reiðubúið til að borga fyrir eintak af verkinu. Það er grunnkenningin. Síðan er auðvitað fullt af útfærslum og flækjum á því fyrirkomulagi eins og við er að búast. En eins og ég sagði þá ölumst við upp og lærum það af foreldrum og vinum og vandamönnum að það eru ákveðnir hlutir sem við eigum ekki að gera. Við eigum ekki að stela, ekki taka eigur annarra, við eigum ekki að plata fólk, við eigum ekki að ljúga, við eigum ekki að meiða fólk, við eigum ekki að gera alls konar hluti. En þegar kemur að höfundarétti þá koma aftur og aftur upp spurningar þar sem svörin eru ekki jafn augljós. Það er því alveg eðlilegt að Alþingi berist umsagnir þar sem hagsmunaaðilar benda á að fólk skilji ekki eitt eða annað í höfundarétti, eins og til að mynda af hverju ekki megi taka tillit til sérþarfa fatlaðs fólks. Sem betur fer búum við í heimi þar sem stundum er tekið tillit til þeirra, eins og er einkenni þessa góða máls, sem ég styð með sama fyrirvara og hv. þingmaður sem talaði hér á undan. Ég hef ekki lesið það spjaldanna á milli en ég hlýddi á ræðu hæstv. ráðherra og þekki málið bara af bakgrunni þess, Marakess-sáttmálanum og öllu því.
En það er annað og sambærilegt mál, sem lagt var fram á síðasta þingi af hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrir Flokk fólksins, sem ég vona að verði aftur lagt fram. Það varðar 13. gr. höfundalaga, en þetta frumvarp tekur ekki á því. Það fjallar um rétt fasteignaeiganda til að breyta húsum þrátt fyrir höfundarétt. Fimm umsagnir bárust um málið á síðasta þingi sem draga má saman með mjög einföldum hætti; meginatriðið í þeim öllum var að hv. flutningsmaður skildi ekki höfundarétt, þetta væri alveg agalega slæmt fyrir höfundarétt. Nú væri sjálfsagt auðvelt að spyrja hver skilji aðstæður hv. þingmanns sem glímir við líkamlega fötlun og þekkir mörg dæmi þess að fólk með líkamlegar fatlanir hafi lent í vandræðum, eins og hann orðaði það, ekki einu sinni, ekki tvisvar, ekki þrisvar heldur margoft, vegna þess að mótbárur koma frá aðilum sem telja sig vera að vernda höfundarétt. Ég var mjög hneykslaður. Ég sat hér úti í sal og kom upp í andsvar og spurði hv. þingmann hvort ég hefði skilið hann rétt, ég var svo hneykslaður á þessum fráleita raunveruleika. Þegar kemur að höfundarétti ætti maður nú einhvern tímann að hætta að vera hissa á því að heyra eitthvað fráleitt því að það kemur reglulega fyrir. Það er vegna þess að höfundaréttur er þess eðlis að hann býr til gerviskort. Ef við byggjum viðskiptamódel sem er öðruvísi, og í sumum greinum gerum við það reyndar, þá er það ekki sjálfkrafa á skjön við hagsmuni þeirra sem búa til hugverk að efni þeirra sé fjölfaldað villt og galið. Ég skrifa sjálfur hugbúnað sem ég dreifi villt og galið og vildi óska þess að fleiri notuðu hann. Geri það reyndar mestmegnis í frítíma mínum þessa dagana. Ég tapa engu á því. Ég græði á því sæmd, vil ég meina, sjáum hvað kollegar mínir hafa um það að segja.
Þar sem þetta mál er til umræðu fannst mér rétt að koma hér upp og nefna að það er algerlega við hæfi, það er ekki róttækt, ekki glannalegt, það er ekki anarkismi, að efast um höfundarétt og kvarta undan því þegar hann kemur í veg fyrir að við nýtum eignir okkar eins og við viljum eða njótum frelsisins á annan hátt.