151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.

[10:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að það sé alltaf rétti tíminn til að fara vel með peningana og tel að alveg óháð þessum kórónuveirufaraldri sé það almennt góð ráðstöfun að semja við þá sem geta verið sveigjanlegir og hagkvæmir í að veita þessa opinberu þjónustu, þjónustu sem er fjármögnuð af opinberu fé. Hér eru nefndar sérstaklega til sögunnar ýmsar aðgerðir sem hægt er að framkvæma utan sjúkrahúsa og við erum svo sannarlega með ýmsar slíkar aðgerðir framkvæmdar. Ég hef nú bæði þurfti að láta gera við öxlina og hnéð á mér á undanförnum árum og ekki var það gert á sjúkrahúsi. Þannig að svo sannarlega erum við með mörg dæmi um slíkt. Ég held að það sé hárrétt ábending að að því marki sem dregið hefur úr getu Landspítalans til að sinna slíkum verkefnum þá eigum við að skoða leiðir til að treysta meira á aðra sem eru með umfangsminni starfsemi sem geta sinnt slíkum verkefnum.

Það er fleira sem ég held að við ættum að skoða hér. Það snýr kannski ekki beint að þessum aðgerðum heldur að hjúkrunarheimilunum. Nú liggur það fyrir að vandi Landspítalans í kórónuveirufaraldrinum er ekki hvað síst fráflæðisvandinn, það tekst ekki að losa fólk sem búið er að lækna af spítalanum. Þá dregur úr viðbragðsgetu eða þrótti spítalans að öðru leyti til að taka við sjúklingum sem koma þangað með kórónuveiru. Þetta er mjög alvarlegt mál. Á sama tíma erum við með óhagkvæmar einingar, eins og t.d. á Vífilsstöðum, ekkert sérstaklega hagkvæm eining og var algjört bráðabirgðaúrræði. Nú eru í gangi samtöl (Forseti hringir.) um að reyna að auka framboð af plássum einmitt í samstarfi við aðila utan hins opinbera kerfis.