151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.

[10:37]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Ég get ekki verið annað en ánægður með þetta svar. Mér þykja töluverð tíðindi felast í því. En ég vona að þess sjái þá stað í aðgerðum ríkisstjórnarinnar núna næstu daga og vikur. Við erum auðvitað að ræða fjárlögin í þinginu og er mjög tímabært að tekið sé mið af þeirri stefnu sem hæstv. ráðherra boðar í fjárlagavinnunni.

Heilbrigðiskerfið hefur vaxið mjög hvað varðar útgjöld ríkisins ár eftir ár. En fær fólk meira fyrir þetta sívaxandi fjármagn? Það er ekki gott að segja, a.m.k. hefur ánægja almennings ekki aukist í hlutfalli við aukin útgjöld. Svoleiðis að nú þegar þörfin knýr stjórnvöld til þess að fá meira fyrir fjármagnið og heilbrigðiskerfinu veitir ekki af að létt sé af því álaginu, þá upphefst vonandi þróun þar sem við fáum meira fyrir fjármagnið sem rennur til heilbrigðismálanna og þar af leiðandi (Forseti hringir.) fái starfsmennirnir betri kjör og sjúklingarnir betri þjónustu.