151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

frumvarp um kennitöluflakk.

[10:40]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Í fyrra lagði hæstv. dómsmálaráðherra fram mál um gjaldþrotaskipti, kennitöluflakk, í framhaldi af svokölluðum lífskjarasamningum og í tengslum við annað frumvarp um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja, eins og það hét. Það mál var afgreitt hér hratt og vel en málið sem átti að taka á kennitöluflakki dagaði hins vegar uppi í meðförum þingsins þrátt fyrir ótvíræðan áhuga og útbreiddan stuðning. Árið áður hafði sambærilegt mál líka lognast út af. Nú er þetta mál sem sé á þingmálaskrá.

Málið er mjög mikilvægt til að jafna stöðu fólks í samkeppnisrekstri, að skilvíst fólk þurfi ekki að standa í samkeppni við vanskilamenn. Það varðar líka hagsmuni launafólks, að launaþjófar geti ekki farið á hausinn og byrjað svo upp á nýtt, hvítskúraðir, á nýrri kennitölu aftur og aftur eins og dæmin sanna. Og þetta er spurning um heilbrigt atvinnulíf. Þetta eru efnahagslegar sóttvarnir.

Í umræðum um málið og umsögnum var almennt sjaldgæfur samhljómur í viðhorfum aðila vinnumarkaðarins en það gætti meiri efasemda meðal ýmissa lögmanna sem sendu inn umsagnir og þeir fundu málinu ýmislegt til foráttu. Skiptastjóri fengi of víðtækar og matskenndar heimildir til að setja aðila í tímabundið atvinnurekstrarbann og orðalag um skaðlega eða óverjandi viðskiptahætti væri ótækt og bent var á að það yrði að vera búið að sanna lögbrot á aðila til að hann fyrirgerði rétti sínum til atvinnurekstrar og annað. Það færi í bága við 75. gr. stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi.

Nú langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins: Eiga þessi viðhorf hljómgrunn innan hans flokks og ef svo er, (Forseti hringir.) hefur það tafið afgreiðslu málsins hér á Alþingi? Styður flokkurinn þetta mál heils hugar?