151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

frumvarp um kennitöluflakk.

[10:44]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Mig langar að spyrja hann um annað sem er þessu tengt. Það hefur komið fram að heildarkröfur Eflingar vegna vangoldinna launa Eflingarfélaga námu ríflega milljarði á síðustu fimm árum. Félagið segir að vandinn sé enn víðtækari. Það er sífellt fleira launafólk sem leitar til stéttarfélaganna til að krefja atvinnurekendur vangoldin laun. Það er heimilt að sekta útgerðir um hátt í 600.000 kr. vegna launaundanskota í kjarasamningi Sjómannasambandsins og farið var fram á það af launafólki að viðurlög af þessu tagi yrðu sett inn í kjarasamning við Samtök atvinnulífsins 2018–2019. Í framhaldi af því gáfu stjórnvöld loforð um að slík lög yrðu sett í íslenska löggjöf í yfirlýsingu undir yfirskriftinni: (Forseti hringir.) Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga. Það bólar nú enn ekki á efndum þrátt fyrir ítrekaðar áminningar (Forseti hringir.) og nú langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um efndir.