frumvarp um kennitöluflakk.
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða mál sem verið hefur í vinnslu í félagsmálaráðuneytinu. Ég veit ekki betur en að verið hafi samtal milli aðila vinnumarkaðarins um útfærslu á því. En því miður hefur það fallið í þann farveg að það er engin samstaða um útfærsluna nákvæmlega. Hér er annars vegar um að ræða kröfuna um að lögfest verði 50% álag á hin ógreiddu laun, eða þau laun sem haldið var eftir í órétti. Spurningin sem við sitjum uppi með er hvernig við getum forgangsraðað hinum ýmsu kröfum sem kunna að standa á fyrirtæki með þessum hætti. Hin almenna regla er að menn eiga að greiða með dráttarvöxtum það sem þeir skulda. Það kann síðan að varða við hegningarlög ef menn hafa vísvitandi, t.d. með einhverjum skipulegum hætti, haldið mönnum í blekkingu um rétt sinn o.s.frv. Þetta er dálítið flókið úrlausnarefni. Best hefði auðvitað verið ef aðilar vinnumarkaðarins hefðu komið sér saman um þetta. En ég var á fundi síðast í gær um þetta mál og það er svo sannarlega á dagskrá.