viðbrögð við stjórnsýsluúttekt á TR.
Forseti. Á síðasta þingi lagði ég ásamt átta öðrum nefndarmönnum velferðarnefndar fram beiðni um skýrslu frá ríkisendurskoðanda um stjórnsýsluendurskoðun á starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins. Í greinargerð með skýrslubeiðni kemur fram, með leyfi forseta:
„Þeir sem þiggja bætur frá Tryggingastofnun ríkisins eru oft í tekjulægstu hópum samfélagsins. Sá lífeyrir sem þeir hljóta frá Tryggingastofnun er oftast eina eða helsta uppistaðan í takmörkuðum tekjum þeirra.“
Nú er ljóst af skýrslu ríkisendurskoðanda, sem afgreidd var úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í gær, að staða skjólstæðinga Tryggingastofnunar í samskiptum við stofnunina er ekki trygg og réttindi þeirra virðast ekki vera virt. Í skýrslunni kemur m.a. fram að mál séu ekki nægilega vel rannsökuð áður en ákvörðun er tekin og það skorti leiðbeiningar til fólks þar sem hægt er að biðja um niðurfellingu krafna eða endurútreikning bóta. 90% lífeyrisþega fá rangar greiðslur, sem getur verið gríðarlega íþyngjandi fyrir lífeyrisþega sem hafa engar aðrar tekjur og þurfa alfarið að stóla á þessar greiðslur, þótt þær séu að sjálfsögðu alltaf leiðréttar eftir á.
Mikill skortur er á upplýsingamiðlun og frumkvæði Tryggingastofnunar til að tryggja að skjólstæðingar skilji réttindi sín. Ljóst er að almannatryggingakerfið er ógagnsætt og flókið fyrir þá sem þurfa að reikna út bæturnar, hvað þá fyrir þá sem þurfa að reiða sig á þær til að draga fram lífið. Það er óaðgengilegt.
Það er nokkuð ljóst af lestri skýrslunnar að áherslan á málefni almannatrygginga innan ráðuneytis hæstv. ráðherra er skammarlega lítil og er þar margt sem þarf að bæta. Mér finnst mikilvægt að fram komi að það er á ábyrgð ráðherra, ekki Tryggingastofnunar, sem mér skilst að sé rekin með halla núna og þurfi á fjármagni og stuðningi að halda. Eitt dæmi af mörgum er margra ára bið eftir heildarendurskoðun laga um almannatryggingar, en ekkert bólar á þeirri vinnu, ef marka má þingmálaskrá ráðherra.
Forseti. Það liggur því beinast við að spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna almannatryggingakerfið sé í svona lágum forgangi hjá honum. Ætlar hæstv. ráðherra að ráðast í einhverjar raunverulegar aðgerðir? Mun ráðherra setja einhvern mannauð og fjármagn í að ráðast í þær víðtæku aðgerðir sem ríkisendurskoðandi telur þörf á?