151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

innflutningur landbúnaðarvara.

[10:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Fyrst aðeins almennt um tollamálin. Það var mikið gleðiefni hér fyrir nokkrum árum þegar við tókum upp nýja stefnu í þessum málaflokki sem fól í sér að við felldum niður öll vörugjöld, sem höfðu lifað hér í áratugi, á annað en áfengi, tóbak, bifreiðar og nokkra undanþáguflokka. En eftir sitja tollarnir. Í tollamálunum hefur Íslandi tekist í alþjóðlegu samstarfi, bæði í tvíhliða samningum og fjölþjóðlegum samningum, að byggja upp gríðarlega mikið tollfrelsi í viðskiptum við landið. Þannig er tollfrelsi á Íslandi í þessu samhengi langt umfram það sem gildir gagnvart Evrópusambandinu. Ef maður horfir á Evrópusambandið sem eina heild og restina af heiminum sem þá sem eru fyrir utan tollmúra Evrópusambandsins, er sá múr miklu hærri en við Íslendingar höfum reist. Hann hefur verið mældur svona u.þ.b. 27%, þ.e. það sé 27% tollfrelsi þar en á Íslandi 90%.

Varðandi ábendingar sem hafa komið fram um að flokka mætti betur eða það þyrfti að skapa nýja tollflokka og bregðast við ábendingum um að menn væru að flokka með röngum hætti innfluttar vörur, þá höfum við sett af stað sérstaka athugun. Við höfum bæði verið með í gangi einstök mál sem varða einstakar tegundir innflutnings og í því sambandi mætti nefna osta sérstaklega. Svo hef ég nýlega (Forseti hringir.) sett af stað almenna athugun á þessum málum sem gefur til kynna að það séu atriði sem við þurfum að (Forseti hringir.) fara nánar ofan í saumana á og það mun ég láta gera.