frumvarp um kynrænt sjálfræði.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég vil segja það í upphafi að ég var ekki viðstaddur þá umræðu sem hv. þingmaður vitnar til og heyrði þar af leiðandi hvorki ræðu hv. þingmanns né ræðu forsætisráðherra um málið, sem mælti fyrir þessum frumvörpum fyrr í þessari viku. Málið hefur auðvitað verið mikið til umfjöllunar en kemur ekki inn á borð félags- og barnamálaráðherra með beinum hætti. Hv. þingmaður vitnar til þess að stór frumvörp, sem lúta að málefnum barna, verði lögð fram á haustdögum, m.a. endurskoðuð barnaverndarlög og stór löggjöf um samþætta þjónustu í þágu barna auk fjögurra annarra stórra lagafrumvarpa. Þau mál eru einfaldlega í vinnslu enn og er svolítið óvenjulegt með hvaða hætti þau eru unnin vegna þess að þau eru unnin í miklu samráði fulltrúa allra stjórnmálaflokka og fulltrúa allra ráðuneyta og með Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Mér er kunnugt um að þetta er eitt af því sem komið hefur til tals í þeirri vinnu en ekki liggur ljóst fyrir hverjar lyktir verða í því.
Um það mál sem forsætisráðherra mælti hér fyrir vil ég segja að það er komið til þingsins með stuðningi ríkisstjórnarinnar, með stuðningi stjórnarflokkanna. Það kann vel að vera að það taki einhverjum breytingum í þinginu en það er komið fram með stuðningi ríkisstjórnarinnar. Sá sem hér stendur er í ríkisstjórninni og styður það frumvarp sem komið er fram. Það kann vissulega að taka breytingum hér í þinginu og ég áskil mér rétt til þess að láta afstöðu mína til málsins koma endanlega fram í atkvæðagreiðslunni. Eins og ég segi: Þetta mál er stutt af öllum ríkisstjórnarflokkunum (Forseti hringir.) og þar með talið þeim sem hér stendur.