tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að minnast á að við búum við kerfi Sjálfstæðisflokksins. Við búum í þessu magnaða landi þar sem við höfum það býsna gott, þar sem við búum við ein mestu lífsgæði sem fást í heiminum, kannski einmitt vegna þess að hér hefur verið rekin skynsamleg stefna í þessu landi frá sjálfstæði. Sem betur fer hefur Sjálfstæðisflokkurinn alloft verið í ríkisstjórn og náð að setja mark sitt á stefnuna í þessu landi. Ég held að það sé stór hluti af ástæðunni fyrir því að við búum eins vel og við gerum í dag, þótt að sjálfsögðu komi miklu fleira til.
Ég hygg að við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson getum verið sammála um að gott sé að einfalda regluverk. Ég minnist t.d. eins góðs frumvarps sem kom frá Pírötum. Ég leit á það sem einföldun regluverks, en ætli hv. þingmenn myndu ekki líta á það sem tiltekt í lagasafninu. Hvort heldur sem er þá minnist ég þess að það var mjög gott frumvarp. Það þarf líka að taka reglulega til í lagasafninu. Tiltektir eru alltaf af hinu góða. Það einfaldar oft lífið þegar maður nær að taka til.
Hv. þingmaður nefndi kennitöluflakkið og við vitum að það er vandamál. En við vitum líka að lausnin á því er ekkert ofboðslega einföld. Við höfum alloft gert tilraunir til þess að koma í veg fyrir það sem við köllum oft og tíðum kennitöluflakk. En ég hygg að við hv. þingmaður séum líka sammála um mikilvægi nýsköpunar og að hér fái frumkvöðlar að spreyta sig. Þótt fyrirtæki sem maður rekur fari í þrot þá á það ekki að vera ævintýraleg skömm og þýða að maður megi ekki reyna aftur. Ég stend alla vega í þeirri meiningu. Ég vil byggja upp þannig samfélag að það séu tækifæri til að halda áfram jafnvel þó að eitthvað hafi mistekist. Það er það sem við höfum verið að verja þegar við höfum varið þetta fyrirkomulag okkar, sem er með (Forseti hringir.) hlutafélagaforminu, og kosti þess, þó að á því kunni líka að vera ákveðnir gallar. Það er nokkuð sem við þurfum að vinna með og reyna að koma í veg fyrir.