151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

24. mál
[11:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við Píratar höfum lagt fram alla vega fyrstu skrefin í áttina að því að afnema kennitöluflakkið með því að opna fyrir upplýsingar, opna aðgengi að ársreikningaskrá, hluthafaskrá og fyrirtækjaskrá til þess að fólk geti skoðað við hverja það á viðskipti. Það er lykilatriði. Við fáum nú aukinn stuðning við að fá að vita hver raunverulegur eigandi sé. Það hefur farið í gegnum ríkisstjórn, í gegnum ákveðna innleiðingu, eftir alþjóðlega opinberun t.d. varðandi Panama-skjölin og þess háttar. Þar kemur fram hversu mikilvægt það er að vita hver raunverulegur eigandi hvers fyrirtækis er. Þannig að þegar einstaka aðilar úti í bæ, eða heildsölur eða þess háttar, ákveða að fara í viðskipti við einhvern aðila þá geta þau séð hvernig viðskiptasaga þess aðila er, hvort hann nýtir sér þau vandamál sem kennitöluflakkið opinberar, sópar til sín aðföngum rétt áður en fyrirtæki fara í gjaldþrot o.s.frv. eða hvort hann er á heilbrigðan og góðan hátt að segja skilið við rekstur sem ekki gengur og nýtir það í betrumbætur í nýsköpun í framhaldinu. Þetta er það kerfi sem við höfum komið í veg fyrir að geti blómstrað af sjálfsdáðum með því að hafa takmarkað aðgengi að þessum upplýsingum.